Endurskilsdagur

Fyrri endurskilsdagur vorannar 2023 verður 22. febrúar.

Það verða tveir endurskilsdagar, 22. febrúar og 28. mars, þar sem nemendum gefst kostur á að vinna upp ákveðin verkefni í samráði við kennara.

Nemendur geta nýtt þessa daga til þess að vinna upp ákveðin verkefni í samráði við kennara sína. Vinnan skal fara fram í skólanum undir handleiðslu kennara en þeir verða í skólanum þennan dag.

Stundaskrá þessara daga er ekki ekki eins og venjulega, því hægt verður að vinna verkefni úr áföngum sem ekki eru almennt í kennslu þessa daga. Meginreglan er sú að kennari sem kennir fjórum hópum er annað hvort frá 8:30-13:20 eða frá 11:15-15:35. Kennarar sem eru með færri hópa eru annað hvort frá 8:30-10:25 eða frá 13:45 - 15:35. Listi með niðurröðun kennara verður birtur þegar nær dregur.

Athugið að eftir þessa endurskilsdaga verður ekki hægt að skila verkefnum sem unnin voru fyrir viðkomandi dag.

LESA MEIRA