Einkunnabirting

Einkunnir birtast í Innu jafnóðum og kennarar skrá þær inn eftir síðasta kennsludag. Síðasti dagur til að birta einkunnir er fimmtudagurinn 15. október kl. 11. 

Vilji nemandi fá útskýringar á mati sem liggur á bak við lokaeinkunn í áfanga getur hann leitað til kennara áfangans eftir einkunnabirtingu með því að senda tölvupóst til hans á einkunnabirtingardag til að sjá verkefni sín og útreikninga á lokaeinkunn. Kennari mælir sér mót við nemanda innan 5 kennsludaga frá einkunnabirtingu.