Nemendur fá aðgang að internetinu og þráðlaust tölvunet er til staðar í skólanum. Skólinn setur eftirfarandi reglur um notkun og hegðun á internetinu:
- Notendanafni og lykilorði notenda er óheimilt að deila með öðrum. Nemandi má einungis nota eigið notendanafn og ber ábyrgð á allri notkun þess.
- Nemendum er óheimilt að afrita hugbúnað, tónlist, kvikmyndir eða önnur gögn sem eru vernduð höfundarrétti nema ef fyrir liggur leyfi eigenda.
- Nemendum er bannað að senda óviðeigandi efni á tölvuneti skólans hvort heldur er í tölvupósti, á vefsíður eða með öðrum verkfærum. Hér er átt við fjölsendingar (keðjubréf, ruslpóst), ósiðlegt efni, og annað sem getur verið særandi eða meiðandi.
- Nemendum er óheimilt að fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða að afrita nokkur gögn sem eru á tölvuneti skólans, nema eigin gögn.
- Óheimilt er að nota net skólans til að reyna að komast ólöglega inn á netsvæði eða tölvur annarra.
Ítrekuð eða alvarleg brot á reglum þessum geta leitt til brottvísunar og brot sem varða við landslög verða kærð til lögreglu.
Síðast breytt: 2. september 2026