Sérfræðingur ber ábyrgð á og annast þroskaþjálfun, kennslu og umönnun nemanda með fötlun. Hann vinnur með áskoranir sem koma upp í daglegu starfi með nemanda sem honum er falið sem getur verið af ólíkum toga vegna fötlunar s.s. vegna ofbeldishegðunar, aðstoðar við hreinlæti og/eða athafnir daglegs lífs.
- ber ábyrgð á og sinnir daglegu starfi með nemanda í samstarfi við stuðningsfulltrúa
- annast undirbúning þjálfunar, umönnunar og kennslu með þeim nemanda sem honum er falið hverju sinni
- annast og ber ábyrgð á frágangi annar og lokamati fyrir þann nemanda sem honum er falið hverju sinni í samráði við deildarstjóra
- sér um gerð einstaklingsáætlunar, verkefna og umsagnar við lok annar í samvinnu við deildarstjóra
- ber ábyrgð á samskiptum við forráðafólk og sinnir samskiptum við fagaðila og teymi sem koma að málum nemenda
- situr brauta- og kennarafundi
- annast og ber ábyrgð á skráningarmálum vegna nemenda sem honum er falið hverju sinni