SÁLF3KV05 - Kvikmyndasálfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2IS05

Nemendur kynnast sálfræðilegum veruleika út frá kvikmyndum. Helstu tegundir kvikmynda verða skoðaðar. Vandlega er farið í kvikmyndir sem taka sérstaklega á ákveðnum sálfræðilegum viðfangsefnum. Ákveðnar myndir eru skoðaðar og nemendur vinna síðan rannsóknarvinnu til að meta sanngildi þeirra sálfræðilegu þátta sem koma fram í myndunum. Dæmigerð viðfangsefni eru ýmsar geðraskanir, sálfræðileg meðferðarúrræði, þroski, þroskafrávik, félagsmótun, kynhlutverk, staðalmyndir, fordómar, viðhorf, múgæsingur, hlýðni við yfirvöld og hópar svo eitthvað sé nefnt.

Markmið áfangans:
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kvikmyndum sem taka af alvöru á sálfræðilegum málum.
  • nokkrum helstu tegundum kvikmynda og þeirri sálfræði sem þar er á bakvið.
  • nokkrum grunnþáttum kvikmyndalistarinnar, sérstaklega handritum, hlutverkum og leikstíl.
  • á umfangi þess vandamáls sem kennt er hverju sinni.

Leikniviðmið: 
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum.
  • bera kvikmyndir saman út frá sálfræðilegri nálgun þeirra.
  • finna fleiri kvikmyndir sem kynna sama þema og tekið er fyrir í áfanganum.
  • gagnrýna það hvernig kvikmyndir mistúlka sálfræðileg viðfangsefni.

Hæfniviðmið: 
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta sérstöðu kvikmyndamiðilsins
  • aðgreina ólíkar tegundir kvikmynda út frá sálfræðilegum þáttum.
  • leggja mat á gæði mynda sem metið er með umræðum um rannsóknarvinnu.
  • yfirfæra yfir á aðrar myndir ákveðin sálfræðileg þemu.
  • vega og meta það sem er rétt og rangt um sálfræðileg viðfangsefni í kvikmyndum.