Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram miðvikudaginn 28. maí við hátíðlega athöfn í húsnæði skólans við Bjarkarholt 35 í Mosfellsbæ.
Að þessu sinni voru 19 nemendur brautskráðir. Af Félags- og hugvísindabraut og Náttúruvísindabraut voru brautskráðir tveir nemendur. Af Opinni stúdentsbraut- almennu kjörsviði voru brautskráðir 11 nemendur, af hestakjörsviði tveir nemendur og þrír nemendur af íþrótta-og lýðheilsukjörsviði. Einnig útskrifaði sérnámsbraut einn nemanda.
Í ræðu skólameistara kom fram að leiðsagnarnámið sem haft er í hávegum í FMOS er samofið svokallaðri mannkostamenntun. FMOS hefur frá upphafi verið fyrirmynd annarra skóla í leiðsagnarnáminu og nú hefur mannkostamenntun, eða Character Education, bæst við. Þar er lögð áhersla á að efla dygðir eins og forvitni, seiglu, kurteisi og hugrekki – að allir séu velkomnir og að allir séu mikilvægir. FMOS er því áfram leiðandi í þróunarstarfi í íslenskum framhaldsskólum og áfram eru áherslur FMOS í kennsluháttum að vekja töluverða athygli erlendis fyrir að vera í fararbroddi og framúrskarandi.
Síðastliðið haust var stofnuð ný braut fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku og hófu 16 nemendur nám á brautinni. Um áramótin var síðan tekinn inn annar hópur á þessa braut. Í haust bættust einnig við nemendur með miklar þjónustuþarfir á sérnámsbraut sem kallað hefur á töluverðar breytingar á húsnæði. Að lokum þakkaði skólameistari útskriftarnemum fyrir samstarfið og óskaði þeim hamingju og velfarnaðar í framtíðinni.