STÆR2FM05 - Fjármálalæsi og mengi

Í áfanganum læra nemendur um veldi, rætur, ásamt útvíkkun veldishugtaksins, þ.e. logra og vísisföll. Síðan verður farið í fjármálalæsi þar sem stuðst verður við fyrrgreind atriði. Að því loknu verður farið í mengjafræði og talnamengi og sérstaklega skoðaður munurinn á ræðum og óræðum tölum, ásamt eiginleikum mengja. Einnig kynnast nemendur óendanleika talnalínunnar með því að skoða talnabil og lausnir ójafna með því að nota formerkjatöflur.

Áfanginn er kjarnaáfangi á öllum brautum skólans sem tóku gildi 1. ágúst 2024 og leysir af kjarnaáfangana STÆR2HH05 og STÆR2LÆ05.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Velda og lograreglum
  • Venslum velda, róta og logra
  • Vísisföllum
  • Launaútreikningum, vöxtum og verðbólgu
  • Helstu hugtökum úr táknum mengjafræðinnar
  • Talnamengjum og talnabilum
  • Ójöfnum

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota föll til að lýsa ýmsum viðfangsefnum og leysa jöfnur
  • Setja upp og leysa hverskyns verkefni sem snúa að vaxtareikningi (vísisföll)
  • Greina hvað liggur að baki tölum úr fjármálaheiminum
  • Leysa ýmiskonar ójöfnur
  • Nota vísindalegar reiknivélar og sérhæfð stærðfræðiforrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni.

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt.
  • Átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • Geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta