Þessi áfangi býður nemendum upp á að skapa myndverk og skúlptúra úr endurnýtanlegum efnum sem annars færu til spillis. Hægt er að nota efni eins og vír, pappír, pappi, plast, ál, gler, hverskonar umbúðir og fleiri efni til að skapa listaverk, hvort sem þau eru tvívíð eða þrívíð.
Nemendur munu vinna út frá eigin hugmyndum undir leiðsögn kennara og einnig í tengslum við ólíkar stefnur í listasögunni. Reynt verður að tengja viðfangsefni nemenda við neysluvenjur nútímafólks og neikvæðar afleiðingar þeirra. Einnig verður unnið út frá sjálfbærni og því hvernig hún getur stuðlað að umhverfisvernd. Um leið efla nemendur þekkingu sína á umhverfisvernd og tengsl sín við nánasta umhverfi og náttúru. Lögð verður áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
Vinnulag
Verkleg vinna og umræður í tímum. Mæting í tíma er mikilvæg þar sem stór hluti verkefnavinnu fer fram í skólanum og þar hafa nemendur aðgang að kennara, áhöldum og efni. Jafnframt er gert ráð fyrir sjálfstæðri vinnu utan kennslustunda, meðal annars hugmynda- og verkefnabók og við önnur verkefni sem sett verða fyrir hverju sinni.
Námsmat og lokaeinkunn – samanlagt 100%
Leiðsagnarmat: Fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla verður lögð á munnlegar umsagnir frá kennara sem leiða nemandann áfram. Verkefni gilda 70% af heildareinkunn.
Hugmynda- og verkefnabók: Hugmynda- og verkefnabók fylgir nemendum í gegnum áfangann. Í þessa bók fjalla nemendur um þau verkefni sem unnin eru yfir önnina og skrá niður þær hugmyndir sem kvikna út frá þeirri vinnu. Sjá fylgiskjal um notkun hugmyndabókar í kennslukerfinu. Hugmynda- og verkefnabók gildir 20% af heildareinkunn.
Lokaverkefni: Í lok annar vinna nemendur eitt lokaverkefni sjálfstætt. Þannig fá þeir tækifæri á að sýna hvað þeir hafa lært yfir önnina. Lokaverkefnið gildir 10% af heildareinkunn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hversu viðkvæm náttúran er
- nánasta umhverfi og virðingu fyrir því
- ferlinu frá hugmynd að fullunnu verki
- aðferðum við listsköpun úr efnum sem skaða ekki umhverfið
- umhverfismennt og endurnýtingu efna
- þeim efnum sem hægt er að endurnýta í listsköpun
- mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota hugmyndabók/skissubók og skrá hugmyndir
- skipuleggja eigið vinnuferli og gera skissur að verkefni
- vinna sjálfstætt og sýna vandvirkni í verkefnavinnu
- taka persónulega afstöðu í verki sínu
- vinna með endurnýtingu efna úr nánasta umhverfi í listsköpun
- tengja verkefni sitt við neysluvenjur fólks í daglegu lífi
- beita gagnrýnni hugsun á eigið verk og verk annarra og sýna frumkvæði við lausn verkefna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta nýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námi
- tengja listsköpun sína og hugmyndir við daglegt líf og umhverfi
- gera sér grein fyrir möguleikum hversdagslegra efna og hluta í nánasta umhverfi og nýta þau í listsköpun
- taka virkan þátt í umræðum um umhverfið og endurnýtingu