MYNL2ET05 - Efnisatriði og hugtök í myndlist, myndbygging, fjarvídd, tvívídd og þrívídd

Þessi áfangi býður nemendum upp á að kanna mismunandi aðferðir við að byggja upp myndverk og hvernig ýmis efnisatriði eða kjarnahugtök innan myndlistar geta haft áhrif á uppbyggingu þeirra. Nemendur munu nota hugtök eins og punktur, lína, flötur, rými, hæð, lengd, breidd, dýpt, tími, tvívið form, þrívíð form, náttúruform, rúmfræðileg form, samræmi, jafnvægi, ójafnvægi, speglun, taktur, endurtekning, jákvæð og neikvæð form, áferð, uppsetning og fleiri hugtök í myndverkum sínum.

Einnig munu þeir efla þekkingu sína fyrir myndbyggingu á tvívíðum fleti með fjarvíddarteikningu þar sem þrívitt umhverfi eða hlutur er teiknaður á tvíviðan flöt. Notuð verða efni eins og blýantur, krít, kol, túss, blek, akríl og fleiri. Í lok áfangans vinna nemendur að skúlptúrgerð þar sem þeir færa tvívíð form yfir í þrívíð form og nota til þess efni eins og vír, pappír, pappa, gifs, leir og fleira.

Vinnulag
Verkleg vinna og umræður í tímum. Mæting í tíma er mikilvæg þar sem stór hluti verkefnavinnu fer fram í skólanum og þar hafa nemendur aðgang að kennara, áhöldum og efni. Jafnframt er gert ráð fyrir sjálfstæðri vinnu utan kennslustunda, meðal annars í hugmynda- og verkefnabók og við önnur verkefni sem sett eru fyrir hverju sinni.

Námsmat og lokaeinkunn – samanlagt 100%

Leiðsagnarmat: Fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla verður lögð á munnlegar umsagnir frá kennara sem leiða nemandann áfram. Verkefni gilda 70% af heildareinkunn.

Hugmynda- og verkefnabók: Hugmynda- og verkefnabók fylgir nemendum í gegnum áfangann. Í þessari bók fjalla nemendur um þau verkefni sem unnin eru yfir önnina og skrá niður þær hugmyndir sem kvikna út frá þeirri vinnu. Sjá fylgiskjal um notkun hugmyndabókar kennslukerfinu. Hugmynda- og verkefnabók gildir 20% af heildareinkunn.

Lokaverkefni: Í lok annar vinna nemendur eitt lokaverkefni sjálfstætt. Þannig fá þeir tækifæri á að sýna hvað þeir hafa lært yfir önnina. Lokaverkefnið gildir 10% af heildareinkunn.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • kjarnahugtökum innan myndlistar/sjónlistar
  • möguleikum grunnforma og línu
  • forsendum myndbyggingar og fjarvíddar
  • notkun tveggja punkta fjarvíddar
  • notkun þriggja punkta fjarvíddar
  • tvíviðum formum, myndbyggingu og möguleikum þeirra
  • þríviðum formum, uppbyggingu og notkun efna til að skapa hluti eða rýmisverk
  • aðferðum og hugtökum tengdum þrívíðri formfræði, þ.e. skúlptúr

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skipuleggja verkferli á sjálfstæðan hátt
  • beita línu og formum til að ná fram mismunandi áhrifum innan myndverks
  • búa til mynstur
  • byggja upp myndflöt
  • teikna umhverfi út frá eins, tveggja eða þriggja punkta fjarvídd
  • vinna verk í tvíviðu formi
  • vinna verk í þríviðu formi
  • nota hin ýmsu efni í myndverki og skúlptúr og skoða eðli þeirra, möguleika og takmarkanir
  • ná tökum á tækni, verklagi og túlkun á þrívíðum skúlptúr
  • sýna vönduð og öguð vinnubrögð
  • sýna frumkvæði og sjálfstæði í verkefnavinnu

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta nýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námi
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna frumkvæði við lausn verkefna
  • nýta sér almenna þekkingu, aðferðir og verkkunnáttu sem hann hefur aflað sér
  • byggja upp myndverk á mismunandi hátt
  • ákveða þær fjarvíddar aðferðir henta best viðfangsefninu
  • hafa gott vald á myndbyggingu í myndverkum
  • yfirfæra tvíviðan flöt yfir í þrívíðan flöt með einföldum vinnuaðferðum