Í þessum áfanga verða kennd grunnatriði myndlistar þar sem lögð verður áhersla á eðli og uppbyggingu grunnforma eins og kúlu, ferhyrnings, keilu og sívalnings. Unnið verður að því að efla skilning nemenda á samspili forma, ljóss og skugga með því að nota teikniblýanta, kol, krít, blek og túss. Nemendur munu einnig kynnast grunnþáttum litafræðinnar eins og frumlitum, samsettum litum, andstæðum litum, jarðlitum, köldum og heitum litum, ásamt litablöndun og táknfræði lita. Einnig verður farið í eðli og merkingu myndbyggingar, lögmál hennar og hvernig hún getur haft áhrif á jafnvægi og merkingu myndflatarins. Í lok áfangans munu nemendur vinna málverk þar sem þeir beita hugtökum sem farið hefur verið yfir í áfanganum.
Vinnulag
Verkleg vinna og umræður í tímum. Mæting í tíma er mikilvæg þar sem stór hluti verkefnavinnu fer fram í skólanum og þar hafa nemendur aðgang að kennara, áhöldum og efni. Jafnframt er gert ráð fyrir sjálfstæðri vinnu utan kennslustunda, meðal annars í hugmynda- og vinnubók og við önnur verkefni sem sett eru fyrir hverju sinni.
Námsmat og lokaeinkunn – samanlagt 100%
Leiðsagnarmat: Fjölbreytt verkefni verða metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla verður lögð á munnlegar umsagnir frá kennara sem leiða nemandann áfram. Verkefni gilda 70% af heildareinkunn.
Hugmynda- og verkefnabók: Hugmynda- og verkefnabók fylgir nemendum í gegnum áfangann. Í þessari bók fjalla nemendur um þau verkefni sem unnin eru yfir önnina og skrá niður þær hugmyndir sem kvikna út frá þeirri vinnu. Sjá fylgiskjal um notkun hugmyndabókar í kennslukerfinu. Hugmynda- og verkefnabók gildir 20% af heildareinkunn.
Lokaverkefni: Í lok annar vinna nemendur eitt lokaverkefni sjálfstætt. Þannig fá þeir tækifæri á að sýna hvað þeir hafa lært yfir önnina. Lokaverkefnið gildir 10% af heildareinkunn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnþáttum í formfræði og teikningu
- formum og uppbyggingu þeirra
- notkun teikniblýanta og virkni þeirra
- ýmsum blæbrigðum skyggingar
- helstu teikniaðferðum á tvívíðan flöt, svo sem blýantsteikningu og teikningu með kolum, krít, tússi og bleki
- litablöndun og táknfræði lita
- litahringnum, frumlitum, annars stigs litum og þriðja stigs litum
- andstæðulitum, samstæðulitum, heitum og köldum litum, hreinum litum og jarðlitum
- einföldum atriðum í samspili forms og lita
- grunnlögmálum og reglum um myndbyggingu
- myndbyggingu og áhrif hennar á myndflötinn
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera skissur og teikningar
- teikna grunnformin, kúlu, ferhyrning, keilu og sívalning
- framkalla ýmis blæbrigði með skyggingu
- nýta skissubók undir hugmyndir sínar
- blanda liti í mismunandi litatónum
- blanda annars og þriðja stigs liti úr grunnlitum og lýsa þá og dekkja
- vinna að uppbyggingu myndflatar út frá lögmálum myndbyggingar
- vinna sjálfstætt
- sýna vönduð og öguð vinnubrögð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta nýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta reglur og form til eigin listsköpunar
- nýta teiknikunnáttu sína til að útfæra eigin hugmyndir
- skilja samspil forma, ljóss og skugga í umhverfinu og myndverkum
- greina á milli lita og litbrigða af öryggi
- vinna með myndbyggingu og jafnvægi í verkum sínum
- vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt með tilliti til formfræði, lita og myndbyggingar
- hafa frumkvæði og koma hugmyndum sínum og upplifunum á framfæri í myndverki
- taka þátt í almennum umræðum og gagnrýni á eigin verk sem annarra
- undirbúa og vinna sjálfstætt að lokaverkefni áfangans