FRAM1AA03 - Framtíðarfærni 1
FRAM1AA03 - Framtíðarfærni 1
Áfanginn er tvískiptur. Annars vegar lífsleikni og hins vegar tölvunotkun. Markmið lífsleiknihluta áfangans er að gefa nemandanum innsýn í sjálfan sig, bæði sem einstakling og í samfélagi við aðra. Nemandinn lærir að þekkja mörk sín og öðlast dýpri skilning á sjálfum sér og umhverfi sínu ásamt því að styrkjast til að takast á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Áhersla er lögð á að efla sjálfsmynd nemandans og trú hans á eigin getu en jafnframt að gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur í samskiptum við aðra.
Markmið tölvunotkunar í áfanganum er að nemendur kynnist þeim forritum sem eru notuð í framhaldsskólanámi. Farið verður yfir undirstöðuatriði forritanna sem nýtast í verkefnavinnu í skólanum, sem og almennt. Nemendur hafa þar tækifæri til að vinna verkefnin í tengslum við sitt áhugasvið. Í áfanganum verða einnig skoðuð þau tækifæri og áskoranir sem nútímatækni veitir okkur.
Í áfanganum er unnið að því að styrkja félagstengsl milli nemenda og undirbúa þá til að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Eitt af markmiðunum er að nemendur eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölmenningarlegu þjóðfélagi. Nemendur eru hvattir til að yfirfæra þá þekkingu og vinnubrögð sem þeir öðlast yfir á aðrar námsgreinar og út í lífið almennt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim kröfum sem gerðar eru í námi í framhaldsskóla
- að spyrja sjálfan sig og aðra spurninga
- þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
- að verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
- Office 365 vinnuumhverfinu
- Tækifærum og áskorunum internetsins
- Aðgengi að forritum til að vinna með myndbandagerð og heimasíðugerð
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig í töluðu og rituðu máli
- sýna umburðarlyndi, samhygð og virðingu fyrir öðrum
- beita gagnrýnni hugsun og spyrja spurninga
- nota þau forrit sem eru mest notuð í Office 365 vinnuumhverfinu
- nýta netið til að finna þær upplýsingar sem þörf er á í verkefnavinnu skólans.
- nota forrit sem vinna myndbandagerð og heimasíðugerð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- auka færni sína í mannlegum samskiptum
- bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra
- taka ábyrgð á eigin lífi og vera meðvitaðri um að daglegar ákvarðanir og breytni hafa áhrif til framtíðar
- lifa í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun
- stunda árangursríkt nám á framhaldskólastigi og taka ábyrgð á eigin námi
- Nota internetið af ábyrgð
- Nýta forrit sem kennd eru í áfanganum í áframhaldandi námi og/eða hvers kyns upplýsingaöflun