Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2023

Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á haustönn 2023 verður sem hér segir:

  • Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-28. febrúar
  • Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 20. mars til 8. júní
  • Innritun eldri nemenda fer fram 27. apríl til 1. júní

Almennar upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má finna á vef Menntamálastofnunar. Þegar búið er að opna fyrir umsóknir er hægt að sækja um og skoða stöðu umsókna á sama vef.