Innritun fyrir haustönn 2020
Opið er fyrir umsóknir eldri nemenda (fæddir 2003 eða fyrr) sem ætla sér að hefja nám í FMOS á haustönn 2020. Innritun fer fram í gegnum vef menntamálastofnunar og stendur yfir á tímabilinu 6. apríl - 31. maí.
Lokainnritun nýnema (fæddir 2004 eða síðar) sem munu útskrifast úr 10. bekk í vor verður 6. maí - 10. júní.
Allar upplýsingar um námið í FMOS er að finna hér á vefsíðunni svo sem yfirlit yfir allar brautir skólans en í boði eru þrjár brautir til stúdentsprófs, tvær styttir brautir og sérnámsbraut. Smellið á brautirnar og þá kemur upp nánari lýsing og hverri og einni. Einnig má smella á staka áfanga til að fá nánari upplýsingar um þá.