Náms- og starfsráðgjöf
Síðast breytt 3. janúar 2019
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er fyrst og fremst að vera málsvari og trúnaðarmaður nemenda innan skólans og standa vörð um velferð þeirra.
Náms- og starfsráðgjafi Framhaldsskólans í Mosfellsbæ er Aðalsteinn Árnason (adalsteinn@fmos.is) og er skrifstofa hans á 1. hæð.
Þjónustan er fyrir ALLA nemendur skólans og miðar að því að vera fyrirbyggjandi, græðandi, fræðandi og þroskandi.
Ráðgjafar veita nemendum aðstoð og stuðning í námi s.s. veita upplýsingar og fræðslu um nám og störf, sinna kennslu um hagnýtar námsaðferðir, aðstoða við að finna úrræði vegna námserfiðleika, hjálpa nemendum að átta sig á áhugasviðum sínum, styrkleikum og námsstíl. Ráðgjöfin miðar að því að efla færni nemenda til að finna sínar eigin leiðir og lausnir á þeim verkefnum sem þeir standa frammi fyrir hverju sinni.
Einnig veitir náms- og starfsráðgjafi skólans nemendum og öðrum sem til hans leita upplýsingar og fræðslu um starfshætti skólans, skólareglur, kennsluhætti og námsmat.
Náms- og starfsráðgjafi skólans er bundinn trúnaði við þá sem til hans leita og starfar skv. siðareglum fagstéttarinnar þar sem áherslan er á manngildi og virðingu, sjálfræði, heill og velferð ráðþega.
Þú getur bókað tíma með því að líta við á skrifstofunni á 1. hæð, hringja í 412-8500 og einnig er hægt að senda tölvupóst á adalsteinn@fmos.is . Námsráðgjöf FMOS er á facebook.
Örfyrirlestrar
Myndbönd um náms-og starfsráðgjöf:
Hvað vil ég læra? Hvernig skipulegg ég mig?
Opnunartímar náms- og starfsráðgjafar:
Mánudagar-miðvikudagar: 8:30-15:45
Fimmtudagar: 8:30-15.30
Föstudagar: 08:30-14:00