UMHV3RÁ03 - Umhverfisráð

Umhverfisráð

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: UMHV2UN05
Í áfanganum skoða nemendur stöðu umhverfismála sem tengjast skólanum eða nærumhverfis hans og vinna að því að koma með markvissar hugmyndir að úrbótum. Mikil áhersla er lögð á að nemendur sýni frumkvæði og þjálfist í lýðræðislegum vinnubrögðum. Efnisáherslur í áfanganum eru breytilegar frá einni önn til annarrar og megináherslan á ákveðna þemu sem t.d. getur verið samgöngur, orka, lýðheilsa, loftslagsbreytingar, neysla, hnattrænt jafnrétti eða annað.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu „sjálfbærni“
  • í hverju verkefnið „Skólar á grænni grein“ felst
  • hver staða umhverfismála er innan skólans
  • ýmsum hugtökum sem tengjast þema áfangans hverju sinni
  • hver staða afmarkaðra umhverfismála er utan skólans, svo sem í nærsamfélaginu, á landsvísu eða á heimsvísu

Leikniviðmið

  • leita sér upplýsinga um umhverfismál, bæði á íslensku og ensku
  • nýta upplýsingar tengdar umhverfismálum til að draga ályktanir
  • meta stöðu umhverfismála í skólanum
  • setja fram hugmyndir um viðfangsefni tengd umhverfismálum, innan skóla og utan, sem vert væri að vinna að úrbótum á

Hæfnisviðmið

  • taka á gagnrýninn hátt þátt í umræðum um umhverfismál
  • vinna í hóp við að útfæra eigin hugmyndir og annarra
  • skoða umhverfismál í samhengi við sjálfbæra þróun
  • fræða nemendur og starfsfólk skólans um afmarkað efni tengt umhverfismálum
  • taka þátt í að standa að viðburðum sem tengjast umhverfismálum
Nánari upplýsingar á námskrá.is