MEMA3MM03 - Menntamaskína

Lokaverkefni-nýsköpunarverkefni

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: Nemendur þurfa að hafa lokið 120 einingum í framhaldsskóla.
MEMA – Menntamaskína er nýsköpunaráfangi/hraðall þar sem nemendur vinna að nýsköpunarverkefni í tengslum við 3ja markmið Sameinuðu þjóðanna: Ekkert hungur. Áfanginn byggir á verkefnalotum sem líkja eftir hönnunar- og nýsköpunaraðferðum alþjóðlegra tæknifyrirtækja sem leggja mikla áherslu á hönnun og fljótvirka frumgerðarsmíði. Unnið er að lokaverkefni sem spannar alla önnina og fer vinnan fram í gegnum hönnunar- og tæknispretti sem byggja á teymum sem vinna að því að búa til virka frumgerð að nýsköpunarhugmynd. Maskína hefst í ágúst og lýkur með verðlaunaafhendingu í nóvember. Í Maskínu er lögð áhersla á vísindi, hagnýtingu þekkingar, samvinnu, hönnun, tilraunir og prófanir. Fab Lab Reykjavíkur leiðir verkefnið og hefur það vaxið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti með stuðningi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborgar. Með þátttöku í MEMA gefst nemendum og kennurum tækifæri til að kynnast rannsóknum og þróun nýsköpunarhugmynda með hjálp sérfræðinga Fab Lab Reykjavíkur.

Þekkingarviðmið

  • nýsköpun; uppbyggingu, aðferðum, hugtökum
  • teymisvinnu í rannsóknum og þróun
  • aðferðum Hönnunarspretta (Design sprint)
  • stafrænni hönnun og frumgerðarsmíð
  • notendaprófunum á lausnum

Leikniviðmið

  • skipuleggja verkferlið með ábyrgum hætti í samvinnu við sitt teymi
  • sýna frumkvæði og vera skapandi í mótun hugmynda sinna
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin hugmyndir, verkferli og niðurstöður
  • vinna með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi
  • geta valið viðeigandi leið með tilliti til verkefna og aðstæðna hverju sinni
  • velja réttar aðferðir til að útfæra hugmyndir sínar hvað varðar tækni, verklag og skapandi aðferðir sem endurspegla hugmyndavinnu tengda nýsköpun og inntaki verkefna

Hæfnisviðmið

  • geta miðlað þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt svo sem munnlega, skriflega, verklega og með nýmiðlum
  • þróa hugmyndir í teymi og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
  • vinna verk af innsæi og næmni en með rannsakandi aðferðum
  • gera sér grein fyrir siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki nýsköpunar
  • getað fjallað um nýsköpun út frá þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna
  • vera fær um að greina og meta eigin verk og annarra af þekkingu og víðsýni
Nánari upplýsingar á námskrá.is