TÖLN1MY05 - Tölvunotkun – Myndvinnsla og tölvuteikning

Myndvinnsla og tölvuteikning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í þessum grunnáfanga í tölvunotkun er unnið í ýmsum myndvinnsluverkefnum með forritinu Gimp. Hannað og teiknað er í tvívídd með forritinu Inkscape. Hannað og teiknað er í þrívídd með forritunum Fusion 360 og Blender. Teikningar verða notaðar til að búa til límmiða, límmiða á föt, brenna í við og prenta út með þrívíddarprentara.

Þekkingarviðmið

  • á ýmsum forritum sem þarf að nota í námi og starfi
  • þeim möguleikum sem tölvukunnátta getur veitt

Leikniviðmið

  • nota teikniforrit til að hanna hluti í þrívídd
  • nota teikniforrit til að hanna hluti í tvívídd
  • vinna með myndir í myndvinnsluforriti
  • nota þrívíddarprentara
  • lært á vinylskera og „laser cutter“ í aðstöðu hjá fablab

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • vinna í hópi með aðstoð tölva og netsins
Nánari upplýsingar á námskrá.is