STÆS1RE04 - Grunnur hraðferð B

Algengar reikniaðgerðir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í þessum áfanga er fjallað um algebru, jöfnur og grunnhugtök úr tölfræði. Áhersla er lögð á að þjálfa upp og læra ákveðin grunnatriði í stærðfræði með það fyrir augum að byggja upp sjálfstraust nemenda.

Þekkingarviðmið

  • helstu grunnhugtökum í tölfræði
  • notkun og úrvinnslu ýmissa tölfræðigagna
  • aðgerðum á heilum tölum, forgangsröðun aðgerða og notkun sviga
  • undirstöðuatriðum í algebru og hvernig bókstafir eru notaðir til þess að tákna stærðir.

Leikniviðmið

  • vinna úr og nýta tölfræðigögn
  • einfalda algebrustæður
  • liða einfaldar þáttastærðir
  • þátta einfaldar liðastærðir
  • leysa einfaldar jöfnur með óþekktri stærð.

Hæfnisviðmið

  • nota tölfræði í tengslum við raunveruleg úrlausnarverkefni
  • nálgast lesefni á sjálfstæðan hátt
  • lesa einfalda stærðfræðitexta
  • geta unnið eftir fyrirmælum
  • láta skýringar fylgja með útreikningum
  • vanda alla framsetningu og nota stærðfræðitákn á viðeigandi hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is