STÆS1AR04 - Grunnur hraðferð A

Almennar reikniaðgerðir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum er farið yfir helstu atriði úr eldri bekkjum grunnskóla. Áhersla er að þjálfa upp og læra ákveðin grunnatriði í stærðfræði mælieiningar, prósentureikning og flatarmál með það fyrir augum að byggja upp sjálfstraust nemenda til að takast á við stærðfræðinám.

Þekkingarviðmið

  • grunnaðferðum í stærðfræði og hugtökum tengd þeim
  • ummáli, flatarmáli og rúmmáli grunnforma
  • algengustu málum og mælieiningum
  • hugtökum tengdum prósentureikningi.

Leikniviðmið

  • beita grunnaðferðum í stærðfræði
  • reikna ummál, flatarmál og rúmmál ólíkra forma
  • meðhöndla heilar tölur, jákvæðar og neikvæðar, leggja saman, draga frá, margfalda og deila
  • styttingu og lengingu brota, samnefnara, samlagningu brota og margföldun brota
  • breyta úr einni mælieiningu í aðra.

Hæfnisviðmið

  • nálgast lesefni á sjálfstæðan hátt
  • lesa einfalda stærðfræðitexta
  • geta unnið eftir fyrirmælum
  • láta skýringar fylgja með útreikningum
  • vanda framsetningu og gæta að réttri notkun stærðfræðitákna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is