LÍSÉ1SS04 - Lífsleikni með áherslu á samgöngur og samvinnu

samgöngur, samvinna

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum verður lögð áhersla á afþreyingu í daglegu lífi, almenningssamgöngur og að gera skemmtilega hluti með öðrum. Nemendur æfast í að skipuleggja strætóferðir, taka strætó og fara í vettvangsferðir með hópi. Markmið ferðanna er að auka fjölbreytni í daglegu lífi, að verða sjálfstæðari og venjast því að taka strætó. Farið verður í nokkrar vettvangsferðir. Eftir hverja ferð verður farið yfir hvað gekk vel og hvað þyrfti að athuga betur áður en farið er í næstu ferð. Nemendur skipuleggja saman ferðirnar.

Þekkingarviðmið

  • að tómstundir geta verið til afþreyingar en líka haft menntagildi
  • kunna skil á hlutverkum helstu safna og menningarstofnana á höfuðborgarsvæðinu
  • þekki möguleika internetsins og hvernig hægt er að nýta sér það í daglegu lífi
  • almenningssamgöngum
  • hvernig framkomu og hegðun er viðeigandi að sýna á opinberum stöðum.

Leikniviðmið

  • vera sjálfbjarga í daglegu lífi
  • hlýða lögum og reglum í samfélaginu
  • að bregðast við mismunandi félagslegum aðstæðum
  • átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • fara í vettvangsferðir á söfn og menningarviðburði
  • skipuleggja strætóferðir
  • mynda sér skoðun á afþreyingu
  • taka lýðræðislega ákvörðun í hópi um það hvað hópurinn eigi að gera/fara.

Hæfnisviðmið

  • finna sér afþreyingu
  • komast á milli staða með almenningssamgöngum
  • auka sjálfstæði sitt og trú á sjálfum sér
  • finna nýjar og viðeigandi aðferðir til að leysa vandamál
  • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • sýna ábyrga framkomu
  • bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is