ÍSLS1ÞS04 - Þjóðsögur og draugasögur

draugasögur, þjóðsögur

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum er fjallað um þjóðsögur og draugasögur. Lögð er áhersla á uppruna, einkenni og trúverðugleika þjóðsagna. Fjallað verður um þróun og boðskap þjóð- og draugasagna og gildi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Nemendur lesa sögur og frásagnir og þjálfast sjálfir í að segja sögur. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.

Þekkingarviðmið

  • helstu einkennum þjóðsagna
  • helstu einkennum draugasagna
  • inntaki þeirra verka sem lesin eru
  • gildi þjóð-og draugasagna í menningu
  • þjóðsögum í nærumhverfi sínu
  • því helsta sem þarf að hafa í huga þegar saga er sögð
  • fjölbreyttum aðferðum við verkefnavinnu.

Leikniviðmið

  • lesa þjóðsögur sér til gagns og gamans
  • flytja sögur af nokkru öryggi
  • fjalla um söguþráð úr þjóðsögum
  • greina inntak þjóð- og draugasagna
  • miðla þekkingu sinni á þjóðsögum í nærumhverfi
  • tileinka sér fjölbreytt vinnubrögð
  • nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.

Hæfnisviðmið

  • vinna frekar með þjóðsögur og draugasögur og efni þeim tengt
  • skilja að þjóðsögur eru hluti af menningararfi Íslendinga
  • flytja sögur af nokkru öryggi
  • takast á við fjölbreytt verkefni á vandaðan hátt
  • nýta þá tækni sem auðveldar námið.
Nánari upplýsingar á námskrá.is