ÍSLS1BÓ04 - Bókmenntir

bókmenntir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á bókmenntir, lesin er skáldsaga og styttri skáldverk. Nemendur velja sér bók í upphafi annar, lesa hana, taka þátt í umræðum um innihald sögunnar og vinna ýmis verkefni tengd sögunni. Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi lesskilnings
  • grunnhugtökum bókmenntafræðinnar
  • ólíkum tjáskiptaleiðum
  • aðgengi lesefnis
  • inntaki lesefnis.

Leikniviðmið

  • lesa ólíka bókmenntatexta
  • greina grunnhugtök bókmenntafræðinnar
  • túlka og meta atburðarrás og persónur í lesefni
  • íhuga og tjá sig um lesefni í ræðu og riti
  • þekkja aðgengi að lesefni
  • nota talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.

Hæfnisviðmið

  • nálgast lesefni á sjálfstæðan hátt
  • lesa bókmenntir sér til gagns og gamans
  • íhuga og tjá sig á ólíkan hátt um lesefni
  • nýta sér talgervla og önnur hjálpartæki við lestur.
Nánari upplýsingar á námskrá.is