HEIS1VH02 - Veisluhöld og hátíðir

Veislur og hátíðir

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Áfanginn fjallar um matreiðslu og skipulag fyrir veislur og hátíðir. Áhersla er lögð á veisluhöld og verklag sem tengjast því að undirbúa og halda veislur. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og samvinnu við aðra nemendur.

Þekkingarviðmið

  • ýmsum hátíðum og tyllidögum
  • að skipuleggja þarf afmæli og annars konar veislur með góðum fyrirvara
  • að áætla þarf magn veitinga út frá fjölda gesta
  • undirbúningi innkaupalista miðað við fjölda gesta
  • hvernig leggja skal á veisluborð fyrir réttan fjölda og mismunandi tilefni
  • á því hverju þarf að huga að þegar tekið er á móti gestum
  • notkun helstu mælitækja, áhalda og tækja í eldhúsi
  • góðum og skipulögðum vinnubrögðum í eldhúsi
  • mikilvægi hreinlætis í fjölmenni.

Leikniviðmið

  • taka á móti gestum og bjóða upp á veitingar
  • skipuleggja afmæli og tækifærisveislur
  • beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur
  • lesa úr og nota mismunandi uppskriftir
  • beita fjölbreyttum aðferðum og áhöldum við ólíka matargerð
  • meðhöndla viðeigandi hráefni/ áhöld
  • vinna á skipulagðan hátt í eldhúsi
  • leggja á borð og ganga frá eftir borðhald
  • viðhafa viðeigandi hreinlæti.

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja og halda veislu
  • finna uppskriftir eftir ólíkum leiðum
  • útbúa fjölbreyttar veitingar
  • nýta tæki og áhöld í eldhúsi við matargerð
  • sýna góða umgengni og hreinlæti við matargerð
  • fara eftir almennum öryggisatriðum við eldhússtörf
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is