íslenska og tjáning
Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Íslenskuáfangi með áherslu á munnlega framsögn og tjáningu nemenda. Markmiðið er að efla tjáningu og auka sjálfstraust nemenda. Nemendur fá þjálfun í að koma fram, tjá sig á mismunandi hátt og rökstyðja mál sitt. Þeir fá tilsögn í raddbeitingu og látbragði eftir aðstæðum hverju sinni.
Áhersla er lögð á þjálfun í lestri, ritun, tjáningu og málnotkun á fjölbreyttan hátt. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð auk samvinnu nemenda. Nemendur nýta sér hljóðbækur og talgervla við námið.
Þekkingarviðmið
- hvers konar orðræða er við hæfi hverju sinni
- mikilvægi mismunandi raddbeitingar
- mikilvægi þess að vera meðvitaður um líkamstjáningu
- notkun hjálpargagna við ritun.
Leikniviðmið
- koma fram fyrir nemendahópinn
- taka þátt í umræðum
- íhuga og tjá sig um lesefni
- nýta sér talgervil, hljóðbækur og aðra tækni við námið.
Hæfnisviðmið
- vera meðvitaður um styrkleika sína
- efla sjálfstraust og trú á eigin getu
- hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- virða skoðanir annarra
- nýta sér hjálpargögn við lestur og undirbúning framkomu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is