félagssálfræði, raunvísindi, tilraunir
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er unnið með fjölbreyttar verklegar æfingar sem ýmist reyna á vísindaleg vinnubrögð eða þjálfa hagnýta verkkunnáttu. Markmiðið er að ýta undir forvitni nemenda og þjálfa þá í mismunandi vinnubrögðum. Einnig æfast nemendur í að setja fram eigin tilgátur í félags- og raunvísindum, prófa þær með tilraunum og vinna með niðurstöður.
Námið byggist á hugmyndafræði persónumenntar og því er ætlað að efla gagnrýna hugsun, sjálfsþekkingu, heilbrigðan lífsstíl, stærðfræði- og tungumálakunnáttu. Verkefnum er haldið til haga fyrir raunfærnimat á áframhaldandi námi.
Þekkingarviðmið
- einföldum framkvæmdum sem tengjast mismunandi iðngreinum
- tilgátuprófun í félagsvísindum
- tilgátuprófun í raunvísindum
Leikniviðmið
- framkvæma einföld verkefni í viðhaldi heimila
- setja fram einfalda tilgátu og prófa hana
- beita vísindalegum vinnubrögðum
Hæfnisviðmið
- hafa betri skilning á fjölbreytileika iðngreina
- geta ályktað um hugmyndir sínar með markvissum hætti
- skilja mikilvægi vísindalegra vinnubragða
Nánari upplýsingar á námskrá.is