Umhverfisvitund og sjálfbærni
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í áfanganum vinna nemendur með umhverfisvernd og sjálfbærni. Lögð er áhersla á að nemendur verði meðvitaðir um hlutverk sitt við verndun umhverfisins, bæði sitt eigið umhverfi og umhverfið á hnattvísu. Fjallað verður um það sem helst ógnar umhverfi okkar og hvernig hægt er að hafa áhrif til hins betra. Námið byggist á hugmyndafræði persónumenntar og því er ætlað að efla gagnrýna hugsun, sjálfsþekkingu, heilbrigðan lífsstíl, stærðfræði- og tungumálakunnáttu. Verkefnum er haldið til haga fyrir raunfærnimat á áframhaldandi námi.
Þekkingarviðmið
- Fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta
- hlýnun jarðar; orsökum, afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
- sjálfbærni og þýðingu hugtaksins fyrir umhverfið
- endurnýtingu og flokkun sorps
Leikniviðmið
- meta áhrif hversdagslegra athafna á umhverfið
- nýta endurnýtanlegan efnivið
- endurnýta og flokka sorp
Hæfnisviðmið
- minnka ágang á náttúruauðlindir með vistvænni lifnaðarháttum
- vera virkur þátttakandi í umræðu um umhverfismál
- koma auga á skapandi leiðir til sjáfbærni
- umgagast náttúruna af ábyrgð
Nánari upplýsingar á námskrá.is