STÆR2FL02 - Föll og ferlar - fleygbogar

STÆR

Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2LF03
Í þessum áfanga er haldið áfram að fjalla um fallahugtakið og ýmsar gerðir falla og ferla. Fleygbogar verða krufðir til að finna rætur og útgildi. Keilusnið verður kynnt, sérstaklega í sambandi við fleygboga og jöfnu hrings. Við lausn allra verkefna verður reglulega stuðst við tölvuforrit.

Þekkingarviðmið

  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
  • grunnatriðum stærðfræðiforritsins Geogebru
  • fleygbogum
  • fallhugtakinu
  • margliðum; þáttum; núllstöðvum og útgildum

Leikniviðmið

  • lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
  • nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
  • leysa 1. og 2. stigs jöfnur
  • lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta.
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is