HEST2JA05 - Járningar og hreyfifræði

Járningar og hreyfifræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: HEST1HE05
Þessi áfangi er samblanda af verklegri og bóklegri kennslu. Hér verður farið ítarlega í hreyfifræði hrossa í ólíkum gangtegundum og hvernig járningar geta haft áhrif á hreyfingu hrossa. Farið verður ítarlega í líffræðina bak við járningar; hófann og fæturna. Nemendur fá svo verklega kennslu í grunnaðferðum járninga, þar sem lögð er áhersla á jafnvægi og heilbrigða hófa.

Þekkingarviðmið

  • hugtökum sem tengjast hófum og fótum hestsins
  • áhrifum járninga á hreyfingu hestsins
  • líffræði hófa og fóta hesta

Leikniviðmið

  • nýta fræðilegt efni jafnt á íslensku sem og erlendum tungumálum
  • beita gagnrýninni hugsun
  • beita röksemdarfærslu og draga ályktanir út frá staðreyndum
  • beita grunnaðferðum í járningu
  • greina hreyfingar og gagnlag hestsins

Hæfnisviðmið

  • miðla þekkingu sinni til annarra
  • beita gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
  • nota hópavinnu til þess að leysa stærri og umfangsmeiri verkefni
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is