HANV2SK03 - Skartgripahönnun 2

Skartgripagerð

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: HANV1SG03
Í þessum áfanga fá nemendur að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan skartgripahönnunar. Verkefnin verða nokkuð frjáls í höndum nemenda þar sem þeir þurfa að hanna sína eigin skartgripi með tilliti til efnis, litavals og útlits. Í boði er að hanna hálsfestar, armbönd, eyrnalokka, nælur og annað skart. Nemendur fá að vinna með hugmynd að fullunnu verki og sjá hana þróast í veruleika sem er mjög gefandi og þroskandi. Tilfinning fyrir listum býr í hverjum einstaklingi og því fá nemendur tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og læra að skynja umhverfi sitt betur og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Tímarnir eru frjálslegir og bjóða upp á afslappað andrúmsloft. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • Munsturgerð og meðferð mynstra í hönnun
  • Formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
  • Ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • Mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • Gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
  • Umhverfismennt og endurnýtingu efna

Leikniviðmið

  • Nota hugmyndabók og að skrá hugmyndir
  • Beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að vera vandvirkur í verkefnavinnu
  • Skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
  • Setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
  • Vinna með endurnýtanleg efni í listsköpun

Hæfnisviðmið

  • Nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • Sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
  • Vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • Nýta sér hversdagslega hluti í umhverfinu og nota þá í listsköpun
  • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • Vinna með efni úr nánasta umhverfi
  • Þroska færni sína og skilning á list og hönnun
  • Vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun
Nánari upplýsingar á námskrá.is