KFRT3OT05 - Ofurhetjur og teiknimyndablöð

Ofurhetjur og teiknimyndablöð

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ÍSLE2ED05 EÐA KRFT2KF05 EÐA HEIM2BY05 EÐA SAGA2FR05/SAGA2OL05
Áfanginn fjallar um kvikmyndafræði ofurhetjumynda, þróun þeirra í kvikmyndasögunni og áhrif á samfélagið. Einnig er saga teiknimyndablaða rakin og nemendur lesa mikilvægar teiknimyndasögur sem hafa haft áhrif á bæði teiknimyndablöð og kvikmyndir og fræðilegan texta. Einnig eru skoðaðar siðferðislegar og menningarlegar hliðar á hugmyndinni um ofurhetjuna og hvernig hún endurspeglar mannsálina á 21. öldinni.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægum kvikmyndafræðilegum hugtökum
  • sögu teiknimyndablaða og ofurhetjunnar
  • sögu og þróun ofurhetjumyndarinnar
  • grunnaðferðum í greiningu kvikmynda og teiknimyndasagna

Leikniviðmið

  • lesa fræðilegan texta
  • endursegja og skýra fræðilegan texta
  • beita gagnrýnni hugsun
  • meta eigin rök og annarra
  • tjá sig og hlusta á aðra
  • tengja kvikmyndafræði við eigin reynslu og veruleika

Hæfnisviðmið

  • geta miðlað skoðunum og fræðilegum athugunum á skýran hátt.
  • geta greint kvikmyndir og teiknimyndasögur á fræðilegan hátt
  • geta notað hugtök og aðferðir til að skilja og greint báða miðla betur
  • geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
  • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
  • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
  • skilja betur heiminn og samfélagið sem hann býr í
Nánari upplýsingar á námskrá.is