UPPE2BY05 - Uppeldisfræði

Byrjunaráfangi í uppeldisfræðum

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Uppeldisfræði (2. þrep): Í áfanganum er fjallað um samskipti við börn og unglinga. Áhersla er lögð á líðan, hegðun og félagsþroska barna og unglinga. Áhrif samfélagsins verða skoðuð vegna þeirra mismunandi uppeldisaðferða sem notaðar eru. Umræða fjölmiðla og ólíkar hugmyndir manna um uppeldismál eru skoðuð í ljósi breytinga í samfélaginu. Aðrir áhrifaþættir sem skoðaðir verða eru til dæmis áföll í bernsku og staðalímyndir kynjanna. Þá er fjallað um hvað þarf að hafa í huga til að ná árangri í samvinnu með börnum og unglingum í starfi s.s. í íþróttum, tómstundastarfi og skólum. 

Þekkingarviðmið

  • Helstu uppeldisaðferðum
  • Helstu uppeldisfræðingum og kenningum
  • Helstu samskiptaleiðum við börn
  • Algengum greiningum barna eða vanda
  • Ólíkum bakgrunni barna

Leikniviðmið

  • greina á milli mismunandi uppeldisaðferða
  • beita mismunandi aðferðum í samskiptum við börn eftir ólíkum bakgrunni þeirra
  • nota stöðu sína sem fyrirmynd til uppbyggilegra samskipta

Hæfnisviðmið

  • leggja mat á hvaða samskiptaðferðir henta best við margvíslegar aðstæður og fyrir ólíka einstaklinga
  • beita grundvallaraðferðum í eineltismálum
  • taka þátt í rökræðum um uppeldismál
  • meta eigin frammistöðu og vinnuframlag sem og annarra á gagnrýninn hátt
  • setja fram þekkingu sína í ræðu og riti.
Nánari upplýsingar á námskrá.is