TÖLN1MY03 - Tölvunotkun – Myndvinnsla og tölvuteikning

Myndvinnsla og tölvuteikning

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í þessum grunnáfanga í tölvunotkun er farið yfir notkun á myndvinnsluforritinu Gimp, teikniforritunum Sketchup og Inkscape, klippiforritum á tölvum nemenda. Áhersla verður á að efni áfangans komi nemendum að noti í námi og starfi sínu.

Þekkingarviðmið

  • forritum sem þarf að nota í námi og starfi
  • þeim möguleikum sem tölvukunnátta getur veitt

Leikniviðmið

  • setja upp gögn á skýran hátt í töflureikni og búa til línurit úr þeim
  • klippa myndbönd
  • nota teikniforrit til að hanna hluti í þrívídd
  • nota teikniforrit til að hanna hluti í tvívídd
  • vinna með ljósmyndir í myndvinnsluforriti
  • nota ýmis tæki hjá Fablab
  • læra sjálf á ný forrit

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • vinna í hópi með aðstoð tölva og netsins
Nánari upplýsingar á námskrá.is