MAME2FM03 - Framandi matarhefðir

Framandi matarhefðir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: ENSK2OT05
Í áfanganum kynnast nemendur matargerð frá ólíkum löndum með áherslu á götueldhús og skyndibita. Í hverri viku verður nýr áfangastaður valin af hópnum í sameiningu. Nemendur vinna menningartengd verkefni um landið sem heimsótt er og mæta einu sinni í viku í verklegan tíma þar sem eldaður verður götumatur frá viðkomandi svæði. Nemendur safna að sér gögnum yfir önnina og skila inn ferilmöppu í lokin. Verkefni í ferilmöppu þurfa að vera samþykkt af kennurum til þess að vera gild til lokamats.

Þekkingarviðmið

  • ólíkum hefðum landa í götueldun/skyndibita
  • landafræði og mannlífi þeirra landa sem skoðuð eru
  • tónlist, kvikmyndamenningu og íþróttalífi þeirra landa sem heimsótt eru
  • meðhöndlun matvæla, nýtni og hvernig mismunandi hráefnanotkun endurspegli þau svæði þaðan sem réttirnir koma

Leikniviðmið

  • lesa texta sem tengist matargerð og menningu
  • greina sérkenni í matarmenningu ýmissa þjóða
  • matreiða rétti frá ýmsum menningarsvæðum
  • safna saman upplýsingum til að vekja athygli á ólíkum löndum.

Hæfnisviðmið

  • afla sér upplýsinga um matargerð og menningu, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
  • nálgast matarmenningu annarra svæða með opnum huga
  • útvíkka matarsmekk sinn til aukinnar lífsfyllingar
Nánari upplýsingar á námskrá.is