MYNL2MF03 - Myndbygging í málverki og fjarvíddarteikning

Myndbygging og fjarvídd

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: MYNL1GT03, MYNL2ET03 og MYNL2ML03
Blýantsbeiting, línuáherslur, ísómetría, samsíða fjarvídd, málsetning, hæð, breidd og dýpt, aðferðir við skyggingu, fjarvíddarteikning, sjónarhorn, sjóndeildarlína, myndbygging, myndmál, litur, sköpun, myndefni, persónuleg afstaða, hugmyndavinna.

Þekkingarviðmið

  • notkun hringfara og mismunandi reglustikum til að teikna ávöl form
  • hvernig beita á blýanti til að túlka mismunandi fjarlægð í ísómetríuteikningu
  • staðsetningu hluta og lína nákvæmlega innan ísómetríuteikningar
  • myndbyggingu í myndum sem eru í raunsærri fjarvídd
  • þróun niðurstaðna úr skissuvinnuferli
  • greiningu áhrifa litasamsetningar í mismunandi samhengi: ljóst, dökkt, veikt, heitt, kalt o.s.frv
  • greiningu með vísan til táknfræði hvaða möguleg áhrif samsetnig lita og forma getur haft
  • hlutfalli og spennu mannslíkamans
  • verklegri færni við að teikna mannslíkamann

Leikniviðmið

  • blanda liti í ólíkum tónum
  • gera sér grein fyrir því hvernig myndefni getur breytt um útlit og inntak eftir því hvaða sjónarhorn er valið
  • nýta sér hin ýmis efni til myndlistar
  • leita sér heimilda og nýta sér þær
  • sýna persónulega afstöðu í vali myndefna og úrvinnslu
  • ræða opinskátt um hugmyndir sínar og samnemenda sinna
  • skilja verklegra færni við að teikna mannslíkamann

Hæfnisviðmið

  • byggja upp myndverk
  • nýta reglur og form í eigin listsköpun
  • beita gagnrýninni og skapandi hugsun og sýnt áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • geta unnið á perónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært þær í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar
  • dýpka skilning sinn á listrænni vinnu
Nánari upplýsingar á námskrá.is