LÍFS1ÉG03 - Ég, skólinn og samfélagið I

samfélagið, skólinn, Ég

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Markmið áfangans er að gefa nemandanum innsýn í sjálfan sig, bæði sem einstakling og í samfélagi við aðra. Nemandinn lærir að þekkja mörk sín og öðlast dýpri skilning á sjálfum sér og umhverfi sínu ásamt því að styrkjast til að takast á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Áhersla er lögð á að efla sjálfsmynd nemandans og trú hans á eigin getu en jafnframt gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur í samskiptum við aðra. Gerð er krafa um að nemendur skoði markvisst persónu sína og endurskoði markmið sín og lífstíl. Nemendur kynnast því hvernig þeir geta haft bein og óbein jákvæð áhrif á samfélagið sitt. Í áfanganum er unnið að því að styrkja félagstengsl milli nemenda, undirbúa þá til að takast á við krefjandi nám og leggja þannig grunn að frjóu menntasamfélagi. Eitt af markmiðunum er að nemendur eflist í að koma fram af virðingu við aðra í fjölmenningarlegu þjóðfélagi. Nemendur eru hvattir til að yfirfæra þá þekkingu og vinnubrögð sem þeir öðlast yfir á aðrar námsgreinar og út í lífið almennt. Nemendur fá tækifæri til að vinna við margvísleg viðfangsefni á fjölbreyttan og skapandi hátt. .

Þekkingarviðmið

  • þeim kröfum sem gerðar eru í námi í framhaldskóla
  • að spyrja sjálfan sig og aðra spurninga
  • þýðingu þess að lifa í samfélagi við aðra
  • því að verða betur meðvitaður um sjálfan sig, áhugasvið sitt og styrkleika
  • framtíðarmöguleikum sínum
  • mikilvægi markmiðasetningar og leiðum að settum markmiðum
  • gagnsemi sjálfboðastarfa fyrir samfélagið

Leikniviðmið

  • tjá sig í töluðu og rituðu máli
  • sýna umburðarlyndi, samhygð og virðingu fyrir öðrum
  • beita gagnrýnni hugsun og spyrja spurninga
  • bera virðingu fyrir sjálfum sér

Hæfnisviðmið

  • auka færni sína í mannlegum samskiptum
  • bæta eigin vinnubrögð og samstarf við aðra
  • taka ábyrgð á eigin lífi og vera meðvitaðri um að daglegar ákvarðanir og breytni hafa áhrif til framtíðar
  • lifa í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun
  • stunda árangursríkt nám á framhaldsskólastigi og taka ábyrgð á eigin námi
Nánari upplýsingar á námskrá.is