STÆR2FF05 - Föll og ferlar

Föll og ferlar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Helstu efnisatriði eru: talnareikningur, forgangsröð reikniaðgerða, algebra, breytistærðir, forskriftir, hnitarúmfræði, ferlar, gildistöflur, liðun, þáttun, jöfnur, jöfnuhneppi, línur, skurðpunktar, fleygbogar, annars stigs jöfnur, margliður, veldareglur, ferningsrót, staðalform, núllstöðvar og geogebra.

Þekkingarviðmið

  • forgangsröð reikniaðgerða
  • frumtölum og frumþáttun
  • einföldum reglum um veldi og rætur
  • staðalformi
  • notkun tákna fyrir breytistærðir
  • einföldun, liðun og þáttun algebrustæða
  • jöfnum af fyrsta og öðru stigi og einföldum jöfnuhneppum
  • hnitakerfinu
  • eiginleikum beinnar línu og fleygboga
  • fallhugtakinu
  • forskrift, gildistöflu og ferli falla

Leikniviðmið

  • nota reiknireglur til þess að reikna gildi ýmissa stæða
  • stytta brot og einfalda stæður með veldum og rótum
  • setja fram algebrureglur sem almennar jöfnur
  • leysa fyrsta og annars stigs jöfnur sem og jöfnuhneppi
  • Nota reglur sem eru settar fram sem almennar algebrustæður eða jöfnur
  • teikna ferla ýmissa falla eftir gildistöflum
  • teikna og lýsa ýmsum eiginleikum lína og fleygboga
  • lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
  • lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
  • nýta forritið Geogebra og önnur tæki til að hjálpa til við dæmalausnir og skýringu á stærðfræðilegum fyrirbærum

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga.
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
Nánari upplýsingar á námskrá.is