UMHV3ÍS05 - Auðlindir Íslands

framhaldsáfangi í umhverfisfræðum. auðlindir íslands

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: UMHV2UN5 og NÁTT2GR05
Í áfanganum er áhersla á umhverfismál tengd Íslandi. Fjallað er um sjálfbæra auðlindanýtingu og sjálbæra þróun. Lögð verður áhersla á að nemendur skoði sjálfbæra þróun í víðu samhengi og velti fyrir sér mikilvægi umhverfismála, félagslegra þátta og efnahagslegra þátta í þessu samhengi. Sérstaða Íslands í orkumálum er skoðuð. Nemendur kynna sér innlenda orkugjafa og velta fyrir sér hvað felst í hagnýtri orkunýtingu. Nemendur skoða ólíkar gerðir vistvæns eldsneytis og velta fyrir sér kostum og göllum þeirra. Hugmyndir um vistvæna byggð verða kynnar. Fjallað verður um ólíka þætti sem hafa áhrif á hversu vistvæn byggð telst. Lögð verður áhersla á að nemendur kynni sér og vinni með umhverfismál sem eru efst á baugi hverju sinni. Í þessu samhengi er kjörið að þjálfa nemendur í að skoða umhverfismál á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum.

Þekkingarviðmið

  • Sérstöðu Íslands í umhverfismálum
  • Ólíkum kostum í eldsneytismálum
  • Hvernig umhverfismál, félagslegir þættir og efnahagslegir þættir tengjast hugmyndinni um sjálfbæra þróun
  • Hugmyndum um vistvæna byggð
  • Hvað felst í umhverfisvottun
  • Grænu bókhaldi.

Leikniviðmið

  • Lesa skýrslur og lagafrumvörp sem tengjast umhverfismálum
  • Útfæra hugmyndir um sjálfbæra þróun þar sem tekið er tillit til umhverfismála, félagslegra þátta og efnahagslegra þátta
  • Halda grænt bókhald.

Hæfnisviðmið

  • Túlka á gagnrýninn hátt upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
  • Vera virkur þátttakandi í umræðu um umhverfismál.
Nánari upplýsingar á námskrá.is