SAGA3SA05 - Saga og kvikmyndir

saga og kvikmyndir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SAGA2FR5 / SAGA2OL5
Kvikmyndir eru ein vinsælasta afþreying sem við nýtum okkur í nútímasamfélagi. Kvikmyndir sem byggja á sögulegum atburðum hafa notið mikillar hylli í gegnum tíðina og gildir einu hvaða tímabil sögunnar þær einblína á. Í áfanganum verða kvikmyndir sem taka fyrir atburði frá mismunandi tímum teknar fyrir og þær greindar á fjölbreyttan hátt. Meginstefið í áfanganum er að nemendur greini hvernig farið er að þegar sögulegar kvikmyndir eru gerðar og reyni að sjá hvernig samfélagið hefur áhrif á gerð þeirra. Hvað skiptir máli? Horft verður á kvikmyndir í kennslustundum en auk þess eiga nemendur að greina afþreyingarefni sem þeir nýta sér dagsdaglega. Í greiningu á slíku efni reynir mjög á gagnrýna hugsun, sjálfstæða heimildaleit, sjálfstæða úrvinnslu efnis úr ýmsum áttum o.s.frv. Ábyrgð nemenda á eigin námi er mikil, þeir þurfa t.d. að halda dagbók út alla önnina sem stuðlar að því. Verkefnavinnan fer að miklu leyti fram í málstofum eftir sýningu hverrar kvikmyndar og stórum og smáum verkefnum þar sem nemendur vinna ýmist einir eða með samnemendum þar sem allir bera jafn mikla ábyrgð. Til að stuðla að því verður jafningja- og sjálfsmat nýtt þar sem nemendur meta sig og aðra á uppbyggilegan hátt. Verkefnin sjálf nýta aðferðir sagnfræði sem fræðigreinar og nemendur nota þar verklag sem þeir hafa lært í fyrri áföngum til að miðla rökstuddum skoðunum sínum jafnt á fræðilegan sem og fjölbreyttan hátt. Lokaverkefnið sameinar þetta allt þar sem nemendur að setja fram sína eigin hugmynd að sögulegu afþreyingarefni.

Þekkingarviðmið

  • því hvernig sagan birtist í kvikmyndum og öðru afþreyingarefni
  • hvaða áhrif samfélagið hafi á gerð slíks efnis
  • áhrifum slíks efnis á söguskoðun í samfélaginu
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar.

Leikniviðmið

  • meta sögulegt efni í kvikmyndum og öðru afþreyingarefni
  • nota viðurkenndar heimildir til að mynda rökstudda skoðun
  • nýta fræðilegt efni jafnt á íslensku sem erlendum tungumálum
  • beita gagnrýninni hugsun
  • nýta sögulegt efni til að búa til afþreyingarefni.

Hæfnisviðmið

  • geta tjáð skoðanir sínar á rökstuddan hátt í ræðu og riti
  • geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
  • geta búið til sögulegt afþreyingarefni á skapandi hátt
  • skilja áhrif sögulegs afþreyingarefnis á samfélagið og miðlað skoðun sinni
  • geta sett fram efni með verklagi sagnfræðinnar á viðurkenndan hátt.
Nánari upplýsingar á námskrá.is