Innritun umsækjenda fæddir 1995 eða fyrr stendur nú yfir. Henni lýkur fimmtudaginn 31. maí. Búið er að opna fyrir breytingar á umsóknum frá umsækjendur sem útskrifast úr grunnskóla vorið 2012 en lokað verður fyrir þær umsóknir föstudaginn 8. júní. Öll innritun fer fram á www.menntagatt.is.
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ verður haldin laugardaginn 26. maí 2012 í Hlégarði og hefst kl. 14:00.
Allir velunnarar skólans eru velkomnir.
Um 70% starfsmanna FMOS tekur virkan þátt í "Hjólað í vinnuna". Starfsmenn hafa skipt sér í þrjú lið og er mikil stemning í kringum keppnina.
Síðasti kennsludagur vorannar er miðvikudagurinn 16. maí. Einkunnabirting er 23. maí og þann dag milli kl. 11 og 13 er einnig hægt að hitta kennara vegna námsmatsins. Fyrsta útskriftin úr FMOS verður svo laugardaginn 26. maí í Hlégarði.
Innritun fyrir umsækjendur fædda 1995 og fyrr er hafin og stendur til 31. maí. Sótt er um í gegnum menntagatt.is.
Valtímabilið hefst í dag 19. mars og lýkur 30. mars. Á forsíðu eru leiðbeiningar um hvernig á að skrá valið og listi yfir þá áfanga sem verða í boði er undir "Flýtileiðir". Föstudaginn 23.3. verður valtorg þar sem kennarar munu kynna áfangana sína.
Kæru nemendur!
Skráning á viðburði á þemadögum fer fram á skrifstofunni fram á fimmtudag 1. mars. Blöðin verða tekin niður í lok fimmtudagsins. Þið skráið ykkur á 4 viðburði og 4 til vara.
Munið! Mjög mikilvægt að gera þetta sem fyrst!
Þemanefnd
Í dag fóru nemendur í jarðfræði og nemendur í framhaldsáfanga í umhverfisfræði í vettvangsferð í Hellisheiðarvirkjun.
Lesa meira
Nemendur í Heilsueflingu fóru í heimsókn í Hnefaleikastöðina í gær og fengu stutta kennslu í boxi.
Innritun á sérnámsbraut skólans fer fram á www.menntagatt.is frá og með 30. janúar n.k. og stendur til 29. febrúar. Umsækjendur sækja veflykil á www.menntagatt.is og þá opnast þeim aðgangur að innrituninni.
FMOS er með samkomulag við mötuneyti Varmárskóla um kaup á máltíðum fyrir starfsfólk og nemendur.
Nemendur kaupa matarmiða á skrifstofu skólans og þarf að vera búið að ganga frá pöntun kl. 13 á fimmtudegi fyrir vikuna á eftir. Stakur matarmiði kostar kr. 530 en 10 miðar kosta kr. 5.000. Matseðil mánaðarins má finna hér.
Kynningarfundur fyrir nýja nemendur verður haldinn 3. janúar kl. 13:00. Á fundinum verða helstu þættir skólastarfsins kynntir og stundatöflur afhentar.
Um afreksíþróttaáfanga er að ræða. Lögð er áhersla á einstaklinginn, getu hans í knattspyrnu og framfarir. Með vel skipulögðum æfingum í knattspyrnu og í þjálfun þrekþátta er stefnt að því að byggja upp einstaklinga sem áhuga hafa á að ná langt í sinni íþrótt.
Lesa meiraSýning á verkum nemenda í hönnunar- og textíláföngunum HÖN1A05 og TEX1A05 er í ÚTI4 (stofan á gervigrasvellinum).
Allir velkomnir!
Komið sæl!
Á morgun, þriðjudaginn 13. desember, verður opinn leiklistartími hjá leiklist 1A05 og 2A05 í Harðarbóli.
Lesa meiraÞriðjudaginn 13. desember verður jólamatur í mötuneytinu. Þeir nemendur sem vilja vera með í matnum þurfa að kaupa sér matarmiða á skrifstofunni fyrir kl. 13 föstudaginn 9. desember. Máltíðin kostar kr. 500.
Hér fyrir neðan er það ljóð sem lenti í 1. sæti í ljóðasamkeppninni á Degi íslenskrar tungu. Vinningsljóðin þrjú má sjá hér.
Hér fyrir neðan er smásagan sem varð í fyrsta sæti í smásagnakeppninni á Degi íslenskrar tungu. Vinningssögurnar þrjár má finna hér.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu efndu íslenskukennarar FMOS til smásagna- og ljóðasamkeppni meðal nemenda sinna.
Lesa meira
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir laust til umsóknar starf náms- og starfsráðgjafa. Um er að ræða tímabundið 50% starf.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og stofnanasamningi skólans.
Lesa meiraFMOS hvetur foreldra til að mæta á áhugaverðan viðburð í Hlégarði fimmtudaginn 3. nóvember. Smellið hér fyrir frekari upplýsingar.
Kæru nemendur!
Þriðjudaginn 1. nóvember fer fram staðfesting á vali fyrir vorönn 2012. Þið mætið til umsjónarkennarans kl. 9:20, sjá stofur hér fyrir neðan:
Lesa meiraLangar þig að skoða hvar áhugasvið þitt liggur?
Ertu að velta fyrir þér hvað tekur við að námi loknu í FMOS?
Þá gæti áhugakönnunin Bendill II verið eitthvað fyrir þig!
Lesa meiraKynningar á áföngum í boði vor 2012 verða Í DAG fimmtudaginn 27. október á 2. hæð.
Hvernig kom miðannarmatið út?
Þarftu kannski að endurskoða námsvenjur þínar, bæta námstæknina, skipuleggja þig eða skerpa á tilganginum með náminu?
Þá gæti námstækninámskeið verið góður kostur!
Lesa meiraForvarnardagurinn er búinn að vera í fullum gangi hérna í FMOS. Í morgun var svokallað World Café. Nemendum var skipt niður á borð þar sem sex viðfangsefni tengd forvörnum voru tekin fyrir. Eftir hádegi skiptu nemendur sér niður á vinnusmiðjur eftir áhuga hvers og eins þar sem m.a. var unnið myndband og búin til plaköt. Haldið var upp á afraksturinn með vöffluveislu í lok dags.
FMOS ætlar að taka þátt í Forvarnardeginum á morgun, miðvikudaginn 5. október með eftirfarandi dagskrá:
09:00-11:20 World Café í FMOS – skemmtileg stemning og umræður.
11:20-12:30 Hádegishlé
12:30-14:00 Nemendur velja sér eina smiðju eftir áhugasviði.
Allir nemendur mæta á þessum tímum óháð stundatöflu.
Nemendur þurfa ekki að koma með tölvur eða ritfæri með sér.
Að sjálfsögðu er merkt við mætingu þennan dag sem og aðra.
Foreldrar og forráðamenn velkomnir!
Lesa meiraSnilldarlausnir er hugmyndasamkeppni sem gengur út á það að gera sem mest virði úr einum ákveðnum einföldum hlut. Árið 2009 var hluturinn herðatré, árið 2010 var það pappakassi en í ár er það dós sem leikur aðalhlutverkið.
Þetta aukna „virði“ eiga þátttakendur að taka upp á myndband, ekki lengra en 3 mínútur og senda inn í keppnina.
Allir framhaldsskólanemendur á landinu mega taka þátt og það er ekkert hámark á fjölda myndbanda.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum en þau eru:
Snilldarlausnin 2011: 100.000 kr.
Flottasta myndbandið: 50.000 kr.
Frumlegasta hugmyndin: 50.000 kr.
Inga Þóra námsráðgjafi býður upp á námskeið í kvíðastjórnun næstu sex miðvikudaga kl. 12:00. Námskeiðið samanstendur af stuttum fyrirlestrum og verkefnum. Skráning fer fram hjá Ingu Þóru á 3. hæð milli kl. 9-13 mánudaga til föstudaga, með því að senda tölvupóst á netfangið ingathora@fmos.is eða á skrifstofu skólans. Námskeiðið er opið ÖLLUM nemendum FMOS.
Nemendur athugið: Það er ólöglegt að leggja bílum sitthvoru megin við götuna niður að skólanum. Næg bílastæði eru á planinu fyrir neðan Hlégarð. Lögreglan mun frá og með deginum í dag sekta þá ökumenn sem leggja ólöglega. Einnig viljum við benda á að það er líka ólöglegt að leggja í bílastæði merkt fötluðum.
Boðað er til fundar í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ með foreldrum/forráðamönnum nemenda skólans fimmtudaginn 15. september 2011 kl. 17:30.
Nemendur athugið að bílastæði skólans eru á lóðinni við skólann og á stóra stæðinu neðan við Hlégarð. Búið er að loka stæðunum við skátaheimilið enda mikil slysahætta þegar keyrt er yfir göngustíginn að Varmá. Mikilvægt er að virða merkt bílastæði og leggja EKKI á gangstígunum meðfram veginum niður að skólanum. Búast má við að lögreglan sekti þá ökumenn sem leggja ólöglega.
Breyting hefur verið gerð á skólareglunum varðandi veikindatilkynningar.
Sjá http://www.fmos.is/skolinn/skolareglur/:
Lesa meiraLokainnritun stendur yfir til 9. júní, en þá hafa 10. bekkingar tækifæri til að endurskoða og breyta umsókn sinni sem þeir sendu inn í forinnritun (21. mars - 1. apríl). Innritun fer fram á netinu, á slóðinni http://www.menntagatt.is/. Á sama svæði má fá upplýsingar um innritunina og nám í framhaldsskólum.
Innritun eldri umsækjenda, þ.e. annarra en þeirra sem koma beint úr grunnskóla, hófst 21. mars og lýkur 31. maí.
Lesa meiraÍ dag, þriðjudaginn 22. mars verður VALTORG í stofunum á 2. hæð. Áfangar í boði verða kynntir og verða kennarar til viðtals og aðstoða við valið. Hefðbundinni kennslu lýkur kl. 13.40 en í staðinn mæta nemendur á valtorgið.
Miðannarmatið er nú komið inn í Innu. Það er að finna í fellivalmyndinni "Mat". Hér fyrir neðan má sjá hvað hver bókstafur táknar í matinu:
Innritun eldri umsækjenda. þ.e. annarra en þeirra sem koma beint úr grunnskóla, hefst 26. apríl og lýkur 31. maí.
Lesa meiraForinnritun 10. bekkinga fer fram dagana 21. mars til 1. apríl. Lokainnritun verður 3. til 9. júní. Innritun fer fram á netinu, á slóðinni www.menntagatt.is. Á sama svæði má fá upplýsingar um innritunina og nám í framhaldsskólum.
Lesa meiraInnritun á starfsbraut fer fram 20. janúar til 28. febrúar 2011. Umsækjendur þurfa að prenta út umsóknareyðublað og senda til skólans.
Nánari upplýsingar veitir:
Auður Hrólfsdóttir, deildarstjóri starfsbrautar, audur@fmos.is.
Þá er að koma að því. Mánudagskvöldið 31. janúar kl 20:00 keppir Gettu-betur liðið okkar við lið Menntaskólans á Egilsstöðum.
Lesa meiraStundatöflur verða afhentar 3. janúar kl. 11-13. Fyrsti kennsludagur á vorönn er 5. janúar og hefst hann með skólasetningu kl. 8.30. Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu að henni lokinni.
Lesa meiraBókalistinn fyrir vorönn 2011 er tilbúinn og hann má nálgast hér.
Lesa meiraNý styttist í jólin og jólafríið, aðeins þrjár vikur eftir af skólanum. Miðvikudaginn 24. nóvember s.l. tóku nemendur sig til og skreyttu skólann og sjálf sig eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Lesa meiraNú eiga allir nemendur skólans að vera búnir að velja áfanga fyrir vorönn og þarmeð tryggt sér áframhaldandi skólavist við FMOS. Búið er að opna fyrir umsóknir frá nýjum nemendum á vefnum http://www.menntagatt.is/. Umsóknarfrestur er til 26. nóvember.
Lesa meiraVetrarfrí hjá okkur í FMOS er fimmtudaginn 28. október og föstudaginn 29. október. Kennsla hefst aftur mánudaginn 1. nóvember. Skrifstofa skólans lokuð í vetrarfríinu enverður opnuð aftur á mánudagsmorgun kl. 8.
Boðað er til fundar í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ með foreldrum/forráðamönnum nemenda skólans fimmtudaginn 23. september 2010 kl. 17:30.
Lesa meiraÍ gær, fimmtudaginn 9. september var busadagur í FMOS með miklu fjöri og miklum látum eins og vera ber.
Nýnemadagurinn okkar á haustönninni tókst sérlega vel. Nýnemar fengu kynningu á skólanum, kennsluháttum og húsakynnum auk þess sem þau kynntust hvert öðru m.a. í skemmtilegum ratleik sem kennararnir höfðu undirbúið. Nemendum var skipt í hópa eftir umsjónarkennurum og þurftu hóparnir að leysa allskyns þrautir. Það var umsjónarhópur Höllu íþrótta- og lýðheilsukennara sem vann og er þau hér á meðfylgjandi mynd.
Laus er til umsóknar 80-100% staða þroskaþjálfa eða sérkennara við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ á haustönn 2010. Starfið felst í uppbyggingu á nýrri starfsbraut, skipulagi og kennslu á brautinni og umsjón með nemendum.
Lesa meiraLausar er til umsóknar tvær 50-60% stöður stuðningsfulltrúa við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ á haustönn 2010. Störfin felast í stuðningi og aðstoð við nemendur á starfsbraut.
Lesa meira
Nemendur í ÍSL2B05 sýndu í gær, þriðjudag afrakstur skemmtilegs verkefnis um Þrymskviðu. Verkefnið fólst í að gera myndbönd um söguna um Þrym og hvernig Þór dulbjóst í kvenmannsklæði til að endurheimta hamarinn Mjölni frá Jötnum. Nemendum var skipt í fjóra hópa sem hver um sig tók fyrir einn fjórða úr sögunni.
Lesa meiraUm fjörtíu unglingar mættu galvaskir á opna kynningaræfingu á knattspyrnuakademíu í FMOS sem haldin var í gær, miðvikudaginn 5. maí. Þeir Gunnar Borgþórsson og Freyr Alexandersson stjórnuðu æfingunni og gáfu þátttakendum forsmekk að því hvernig æfingar eru uppbyggðar í akademíunni.

Nemendur úr ÍSL2B05 gáfu á dögunum út fyrsta „tímarit“ skólans; Eddu-tíðindi. Þar unnu þau með efni úr Snorra-Eddu og færðu það í fjölbreytilegan búning. Búnar voru til æsifréttir, lesendabréf, auglýsingar, slúður, minningargreinar, dánarfregnir og svo var auðvitað stjörnuspá að hætti Völu. Blaðið er hin besta skemmtun og má nálgast vefútgáfu þess hér. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta höfunda blaðsins. Umsjón með verkefninu hafði Sverrir Árnason íslenskukennari.
Opna húsið sem haldið var fimmtudaginn 18. mars s.l. tókst sérlega vel. Margt var um manninn og stóðu nemendur sig hreint stórkostlega í að kynna skólann sinn. Hluti nemenda gengu um húsið og kynntu starfsemina fyrir gestum og aðrir sá um vöfflubakstur á salnum þar sem slegið hafði verið upp kaffihúsi. Ekki var annað að finna en að mikil ánægja væri með heimsóknina hjá gestunum okkar og hafði einn á orði að það væri skemmtilega heimilislegt að nemendur tæki á móti gestum í inniskóm.
Niðurstöður úr miðannarmati vorannar 2010 er komið. Nemendur geta nálgast þær í Innu sem og foreldrar þeirra nemenda sem eru yngri en 18 ára.
Innritun eldri nemenda (fæddir 1993 eða fyrr)
Innritun í framhaldsskóla er rafræn og sótt er um á www.menntagatt.is/innritun. Umsækjendur sækja um veflykil og fá hann sendan í tölvupósti. Innritun eldri nema fyrir haustönn 2010 stendur yfir 20. apríl – 31. maí 2010.
Lesa meiraFöstudaginn 26. febrúar hófu nokkrir nemendur í umhverfisfræði sölu á ávaxtakrapi. Stendur til að selja þennan dýrindis-hollustudrykk framvegis á föstudögum. Mæltist salan vel fyrir á föstudaginn var og voru viðskiptavinirnir upp til hópa ánægðir með tiltækið. Glasið kostar aðeins 100 krónur og er hverrar krónu virði. Á myndinni má sjá þær stöllur Jóhönnu Ýr, Kötlu Dóru og Tinnu en þær hafa veg og vanda af sölunni.
Nemendur tóku þátt í bráðskemmtilegum leik í umsjónartíma á þriðjudaginn síðastliðinn. Kallast leikurinn "Mission impossible" og fólst hann í því að umsjónarhóparnir fengu blað með hinum ýmsum þrautum sem þurfti að leysa. T.d. þurftu hóparnir að verða sér úti um kartöflu, lakka eina nögl, telja tröppurnar í skólanum og finna útúr hvað aðstoðarskólameistarinn væri gamall. Tókst þessi leikur stórvel og myndaðist mikil keppnisstemning í hópunum. Umsjónarhópur Valgarðs stærðfræðikennara bar sigur úr býtum eftir æsispennandi og harða keppni.
Sverrir íslenskukennari tók þessa skemmtilegu mynd af vinnusömum hóp í íslensku 1A. Eins og hann segir: " Allir að vinna, ýmist að ritun eða í Stoðkennaranum og svo vantar bara tónlistina með myndinni – þau skiptust á að velja lög úr tölvunni meðan þau voru að vinna". Greinilega góður vinnuandi í þessum tíma :)
Undanfarið hefur verið boðið upp á að nemendur FMOS sem búa í Grafarvogi geti tekið rútu á morgnanna frá Borgarholtsskóla í FMOS. Rútan leggur af stað frá bílastæðinu við Borgarholtsskóla kl. 8:10 stundvíslega. Nokkrir nemendur eru þegar að nýta sér þetta og hafa líst ánægju sinni með þessa þjónustu. Ekkert fargjald er rukkað fyrir ferðirnar svo það er um að gera fyrir alla nemendur í Grafarvogi að spara tíma, peninga og bensín og taka rútuna.
Í dag kom Parsla Kopmane skólastjóri frá Ventspils skólanum í Lettlandi í heimsókn í FMOS. Hún er hér á landi til að kynna sér skóla á Íslandi og er í heimsókn hjá Varmárskóla í eina viku. Jóna Dís Bragadóttir kennari í Varmárskóla sem hefur veg og vanda af heimsókn Pörslu kom með henni. Svo heppilega vill til að Janeks Trusevics nemandi í FMOS er ættaður frá Lettlandi og sá um að túlka fyrir gestinn okkar. Parsla lét vel af heimsókninni og ekki skemmdi fyrir að geta kynnt henni skólann á móðurmáli hennar.
Nemendur í FMOS fengu tækifæri á dögunum til að taka þátt í að stýra verkefninu "Krakkafrjálsar". Um er að ræða nokkurra ára gamalt þjálfunarform sem kemur frá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Krakkafrjálsar byggir á blöndu íþrótta við leiki og er sambland af einstaklings- og liðakeppni. Hlynur Chadwick Guðmundsson frjálsíþróttaþjálfari hjá Aftureldingu hafði veg og vanda af þessari kynningu og fékk hann nemendur FMOS til liðs við sig við að stýra nemendum í 3. bekk í Varmárskóla í gegnum þrautirnar. Hugmyndin bak við Krakkafrjálsar er algjörlega ný á Íslandi og því mikill heiður að fá að taka þátt í kynningu á henni. Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Halldór og Þorberg astoða ungan langstökkvara.
Þegar nemendur komu í skólann á mánudagsmorgun beið óvenjulegur gestur fyrir utan skólann. Var þetta lítill kettlingur og svo fór að hann slæddist inn með nemendum og gerði sig heldur betur heimakominn í húsinu, skoðaði allt gaumgæfilega, stökk upp á borð aðstoðarskólameistara og fékk sér göngutúr yfir lyklaborðið hans. Kisu þótti greinilega vistin góð því hún lék sér í öllu sem hún fann, ekki síst böndum á úlpum nemenda. Kisa náðist þó á endanum og reyndist þetta vera heimilisköttur úr Byggðarholtinu og því kominn lagt að. Skólagöngu kisu lauk með því að "pabbi" hennar kom að sækja hana en hún virtist nokkuð glöð með heimsóknina í Brúarland. :)
Vegna fjölgunar nemenda og fækkunar á fartölvum skólans þarf að þrengja reglur um útlán á fartölvum. Einungis verða lánaðar út fartölvur til notkunar í tímum samkvæmt pöntunum frá kennurum.
Ef einhverjar fartölvur eru eftir, eru þær lánaðar út.
Athugið þó að allar tölvur eru lánaðar út einungis í EINA kennslustund í einu.
MJÖG mikilvægt er því að skila tölvunum í lok hverjar kennslustundar.
Hjálpumst að við að láta þetta ganga upp.
Starfsfólk FMOS
Nú er bókalisti vorannar tilbúinn. Hann má finna hér.
Starfsfólk FMOS óskar nemendum FMOS og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla.
Þar sem dregið hefur úr álagi á heilsugæslustöðvar af völdum inflúensu hefur verið send út tilkynning þess efnis að hægt er að sinna gerð veikindavottorða framhaldsskólanema. Því tekur upprunaleg regla gildi um að nemendur skulu skila læknisvottorði ef veikindi vara lengur en tvo daga:
Lesa meiraFrá 14. desember geta nemendur gengið frá kaupum á námsmannakortum á heimasíðu Strætó bs., www.bus.is, vegna vorannar 2010. Verð er 8.000 kr. og gilda kortin frá 1. janúar til 1. júní 2010. Byrjað verður að prenta kortin og senda út á milli jóla og nýárs. Hægt er að láta senda kortin hingað á skrifstofu skólans.
Lesa meiraÁhugamenn um íslenskt mál ættu að hafa um nóg að hugsa næstu vikurnar, því efnt hefur verið til samkeppni um það hvernig best sé að nýta gagnagrunn sem inniheldur u.þ.b. 270.000 íslensk beygingardæmi. Gagnagrunnurinn, Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN), inniheldur upplýsingar um hvernig öll helstu orð íslensks nútímamáls beygjast. Ákveðið hefur verið að opna fyrir aðgang að gagnagrunninum og er samkeppnin haldin í tilefni þess.
Lesa meiraAf gefnu tilefni viljum við taka það fram að ef nemandi er veikur þurfa foreldrar/forráðamenn að láta vita ALLA daga sem nemandinn er veikur og því ekki nóg að hringja fyrsta daginn. Skiptiborð skólans er opið frá 8 til 16 (lokað í hádeginu).
Þetta á við nemendur sem eru yngri en 18 ára, nemendur sem eru eldri en 18 ára láta vita sjálfir.
Reglan er sú að ef veikindi vara lengur en tvo daga þurfi að koma með vottorð, en eins og fram hefur komið, hefur sú regla verið felld úr gildi tímabundið.
Nýir nemendur þurfa að fara á http://menntagatt.is eða smella á tengilinn hér á forsíðunni. Hafa þarf veflykil tiltækan eða sækja um að fá hann sendan til sín í netpósti. Ef veflykill er týndur er einfaldlega sótt um nýjan veflykil. Athugið vel að ekki er nóg að fylla út umsókn, það þarf að smella á "SENDA INN UMSÓKN."
Lesa meiraNemendaráð FMOS er þannig skipað, frá og með deginum í dag:
Tinna Sif Guðmundsdóttir, formaður
Hafdís Sæland, framkvæmdastjóri
Brynjar Páll Benediktsson, formaður skemmtinefndar
Vegna mikils álags á heilsugæslustöðvum þurfa nemendur ekki að skila vottorðum vegna veikinda sinna. Tilkynna þarf veikindi á skrifstofu skólans alla þá daga sem veikindin standa yfir. Athugið að um tímabundna aðgerð er að ræða.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ óskar að ráða starfsmann í ræstingar. Um er að 50% stöðugildi. Vinnutími er frá kl. 15:00-19:00 virka daga.
Lesa meiraNemendur á fyrstu önn Framhaldsskólans í Mosfellsbæ mæta miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9:00 á sérstakan kynningardag þar sem þeir hitta stjórnendur og starfsfólk skólans, fá afhentar stundatöflur og upplýsingar um helstu þætti skólastarfsins. Einnig fá nemendur kynningu kennslukerfi skólans og upplýsingakerfinu Innu.
Mikilvægt er að þeir nemendur sem eiga fartölvur sem þeir ætla að nota í skólanum komi með þær á þennan kynningardag.
Skólasetning er 20. ágúst kl. 13.30 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 21. ágúst.
Undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir fyrstu skólasetningu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Framkvæmdir við Brúarland eru á lokastigi en gert er ráð fyrir að þeim ljúki í kringum 12. ágúst. Búið er að lyfta grettistaki í endurnýjun á húsinu og er það orðið mjög glæsilegt svo það mun án efa fara vel um nemendur og starfsfólk. Rúmlega 50 nemendur munu sækja skólann fyrstu önnina og eru 13 starfsmenn, þar af 7 kennarar. Skólasetning verður 20. ágúst.
Skrifstofa skólans er lokuð frá og með föstudeginum 10. júlí til föstudagsins 24. júlí.
Hægt er að ná í Guðbjörgu Aðalbergsdóttur, skólameistara í síma 864 9729 eða með því að senda tölvupóst á netfangið gudbjorg@fmos.is
Innritun í framhaldsskóla er hafin og stendur til 11. júní. Innritunin er rafræn og allar upplýsingar um hana er að finna á www.menntagatt.is. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ býður nemendum sem eru að ljúka grunnskóla og foreldrum/forráðamönnum þeirra að koma og fá aðstoð náms- og starfsráðgjafa og stjórnenda vegna innritunar í skólann.
Lesa meiraFramhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir framhaldsskólakennurum í eftirfarandi stöður:
Íslenska – heil staða
Enska – heil staða
Stærðfræði – hálf staða
Danska – hálf staða
Félagsgreinar – hálf staða
Raungreinar – hálf staða
Íþróttir – hálf staða
Lesa meiraÍ Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ verður upplýsingatæknin nýtt til hins ítrasta. Hún verður nýtt til að auka fjölbreytni í kennsluháttum, til að auðvelda upplýsingaöflun og til að nemendur læri að nota efni sem aðgengilegt er á netinu á skynsaman og gagnrýninn hátt.
Lesa meiraJón Eggert Bragason verkefnisstjóri hefur verið ráðinn aðstoðarskólameistari við skólann. Jón Eggert er boðinn velkominn til starfa, en hann hefur störf 1. apríl næstkomandi.
Lesa meiraLaus er til umsóknar staða skrifstofustjóra/fjármálastjóra við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í viðskiptafræðum eða sambærilega menntun. Einnig er æskilegt að umsækjendur hafi reynslu af fjármálastjórn.
Einnig er laus til umsóknar 50% staða námsráðgjafa við skólann. Umsækjendur skulu hafa lokið minnst fjögurra ára háskólanámi og þar af eins árs námi í náms- og starfsráðgjöf.
Lesa meira