Knattspyrnuakademía í FMOS
Knattspyrnuakademía FMOS er sérsniðin fyrir unga knattspyrnuiðkendur sem vilja æfa á afreksstigi. Í akademíunni er lögð áhersla á að einstaklingurinn fái stuðning til að bæta sig knattspyrnulega, líkamlega, andlega, námslega og félagslega.
Knattspyrnuakademían snýst um:
- Persónuleg markmið sett fyrir hvern og einn
- Markvissar æfingar þrisvar í viku í stundatöflu
- Fræðsla og fyrirlestrar
- Sérstakur æfingafatnaður frá Hummel
- Strangar kröfur um ástundun og aga
- Samningur um að neyta ekki tóbaks og vímuefna
- Óvissuferð.
Þjálfarar koma frá Knattspyrnuakademíu Íslands sem er í eigu landsþekktra knattspynumanna. Akademían er í boði sem valáfangi á öllum brautum. Nýir nemendur þurfa að skrá sig í áfangann á netfanginu fmos@fmos.is. Sérstakt gjald er fyrir akademíuna kr. 30.000 á önn og er það innheimt af Knattspyrnuakademíu Íslands. Auk þess greiða þátttakendur fyrir æfingafatnað á kostnaðarverði.
Margir landsþekktir knattspyrnumenn og -konur hafa stundað nám hjá Knattspyrnuakademíu Íslands. Sesselja Líf Valgeirsdóttir, leikmaður Aftureldingar í Pepsídeild kvenna stundar nám í FMOS og hefur þetta að segja um akademíuna:

