Fréttir
Innritun á sérnámsbraut 2012
Innritun á sérnámsbraut skólans fer fram á www.menntagatt.is frá og með 30. janúar n.k. og stendur til 29. febrúar. Umsækjendur sækja veflykil á www.menntagatt.is og þá opnast þeim aðgangur að innrituninni.
Nánari leiðbeiningar um rafræna innritun er að finna í bréfi til forráðamanna nemenda sem afhent er í grunnskólum landsins og einnig má finna á slóðinni www.menntagatt.is/kynningarefni.
Upplýsingar um sérnámsbraut skólans má fá hér og hjá Auði Hrólfsdóttur, deildarstjóra sérnámsbraut (audur@fmos.is).
