Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Fréttir

Þroskaþjálfi / sérkennari

22.6.2010 Fréttir

Laus er til umsóknar 80-100% staða þroskaþjálfa eða sérkennara við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ á haustönn 2010. Starfið felst í uppbyggingu á nýrri starfsbraut, skipulagi og kennslu á brautinni og umsjón með nemendum.

 

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun sem þroskaþjálfar eða sérkennarar og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að starfsmanni sem hefur frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2010.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið gudbjorg@fmos.is eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið gudrun@fmos.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Brúarlandi, 270 Mosfellsbær.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 4. júlí 2010. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfanginu gudbjorg@fmos.is eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangið gudrun@fmos.is eða í síma 845-8829.

Skólameistari

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica