Stuðningsfulltrúar á starfsbraut
Lausar er til umsóknar tvær 50-60% stöður stuðningsfulltrúa við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ á haustönn 2010. Störfin felast í stuðningi og aðstoð við nemendur á starfsbraut.
Leitað er að starfsmönnum sem hafa góða samskiptahæfileika og hafa áhuga á að vinna með ungu fólki. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi og hafi góða tölvufærni.
Laun greiðast eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Ráðið verður í stöðurnar frá 15. ágúst 2010.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið gudbjorg@fmos.is eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið gudrun@fmos.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Brúarlandi, 270 Mosfellsbær.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 4. júlí 2010. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfanginu gudbjorg@fmos.is eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangið gudrun@fmos.is eða í síma 845-8829.
Skólameistari
