Þrymskviða í fjórum framhaldsþáttum nemenda ÍSL2B05

Nemendur í ÍSL2B05 sýndu í gær, þriðjudag afrakstur skemmtilegs verkefnis um Þrymskviðu. Verkefnið fólst í að gera myndbönd um söguna um Þrym og hvernig Þór dulbjóst í kvenmannsklæði til að endurheimta hamarinn Mjölni frá Jötnum. Nemendum var skipt í fjóra hópa sem hver um sig tók fyrir einn fjórða úr sögunni.
Það er skemmst frá að segja að afraksturinn var hreint frábær og miklir leikrænir tilburðir sýndir sem og færni í myndatöku, handritagerð, sviðsetningu og fleiru. Eftir sýninguna voru veitt hin ýmsu verðlaun. Katla Dóra sýndi stórleik enda var hún bæði kosin besti og skemmtilegasti leikarinn og Tinna Sif var kosin frumlegasti leikarinn. Annars var hópur 1 með besta handrit og sviðsetningu, hópur 3 var frumlegasti leikhópurinn og hópur 2 með bestu myndatökuna. Eva Guðrún (úr hópi 2) var svo kosin besti sögumaðurinn.
