Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Fréttir

Frábær mæting á kynningar-æfingu fyrir knattspyrnuakademíu FMOS

6.5.2010 Fréttir

Fmos-fotbolti-028Um fjörtíu unglingar mættu galvaskir á opna kynningaræfingu á knattspyrnuakademíu í FMOS sem haldin var í gær, miðvikudaginn 5. maí.  Þeir Gunnar Borgþórsson og Freyr Alexandersson stjórnuðu æfingunni og gáfu þátttakendum forsmekk að því hvernig æfingar eru uppbyggðar í akademíunni. 

Að æfingu lokinni safnaðist hópurinn saman í Brúarlandi, þáði léttar veitingar og hlustaði á stutta kynningu á hvað felst í að taka þátt í akademíunni.   Metnaður, ástundun og árangur er rauði þráðurinn í þessu námi auk þess sem forvarnir og að það vera fyrirmyndir er einnig mikilvægur þáttur.  Á myndinni eru þátttakendur á æfingunni ásamt Gunnari Borgþórssyni en hann er þeim flestum vel kunnugur sem fyrrverandi þjálfari og leikmaður með Aftureldingu.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica