Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009

Á döfinni

Innritun eldri umsækjenda

Innritun annarra en þeirra sem koma beint úr grunnskóla hefst 26. apríl og líkur 31. maí
 

Forinnritun 10. bekkinga

Forinnritun 10. bekkinga fer fram dagana 21. mars til 1. apríl.
Lesa meira
 

Laust starf stuðningsfulltrúa á starfsbraut

Laus er til umsóknar 50-60% staða stuðningsfulltrúa við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Starfið felst í stuðningi og aðstoð við nemendur á starfsbraut. Lesa meira
 

Annarlok

Nú líður að lokum haustannar 2010.   Síðasti kennsludagur er þriðjudaginn 14. desember.  Opnað verður fyrir einkunnir í Innu kl. 9 föstudaginn 17. desember.  Kennarar verða til viðtals frá kl. 11-13 þann dag.
 

Stofnfundur Foreldraráðs FMOS 8. des. n.k.

Stofnfundur Foreldraráðs FMOS verður haldinn í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ miðvikudaginn 8. des 2010 kl: 17:30

 

Dagskrá:

a. Kosning fundarstjóra og fundarritara

b. Kynning á því sem foreldraráð hefur gert

c. Stofnun félagsins Foreldraráð FMOS

d. Lög félagsins lögð fram til samþykktar

e. Önnur mál

f. Fundi slitið.

 

Drög að lögum ráðsins hafa verið send foreldrum/forráðamönnum í tölvupósti en einnig er hægt að óska eftir eintaki með því að senda tölvupóst á fmos@fmos.is

 

Filipusarnæt - skemmtikvöld hjá NFFMOS

Á morgun, fimmtudaginn 4. nóvember, verður haldið skemmtikvöld eða svokallað Filipusarnæt á vegum Nemendafélags FMOS.  Í boði verða bíómynd, spil og huggulegheit.  Pizza og gos verður til sölu á kr. 1200 fyrir þá sem það vilja.

 

Skemmtinefnd NFFMOS

 

 

Skólasókn og veikindi

Nemendum ber að sækja allar kennslustundir samkvæmt stundaskrá.  Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal hann tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans.  Læknisvottorði skal skila inn ef veikindi vara 3 daga eða lengur.

Lesa meira
 

Knattspyrnuakademía FMOS

 

Dönskukennari

 Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir kennara í 50% stöðu í dönsku fyrir haustönn 2010.

 

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.  Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í dönsku og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

 

Lesa meira
 

Síðasti skóladagurinn á vorönn

vatnsstrid-sidasta-skoladaginn-vor10

Mikið húllumhæ og fjör var í morgun á síðasta skóladeginum á vorönninni.  Fyrst hittumst allir á sal en héldu síðan út í góða veðrið þar sem bæði starfsfólk og nemendur kepptu í brennó.  Því næst upphófst mikið vatsstríð þar sem fáir sluppu við að fá amk dropa á sig.  Aðrir blotnuðu meira eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. 

 

Inntökuskilyrði í FMOS

Upplýsingar um inntökuskilyrði í FMOS má nálgast hér.

 

Innritun 10. bekkinga á haustönn 2010

Nemendur sem ljúka námi í 10. bekk grunnskóla sækja um skólavist í framhaldsskólum með rafrænum hætti á vefslóðinni www.menntagatt.is/innritun.

Innritunin er í tvennu lagi:

  • Nemendur sækja um framhaldsskóla dagana 12.-16. apríl. Þeir velja námsbraut og tvo skóla, aðal- og varaskóla.
  • Dagana 7.-11. júní geta nemendur endurskoðað umsóknina og breytt henni ef þurfa þykir.
Lesa meira
 

Þemadagar í FMOS 4.-5. mars

Dagana 4. og 5. mars verða þemadagar í FMOS.  Þá verður hefðbundin kennsla felld niður og nemendur taka þátt í allskyns uppákomum s.s. jóga, sundi, lazertag, bridge og ýmsu fleiru skemmtilegu. 

 

Kærleiksvika í Mosfellsbæ

Nú stendur yfir Kærleiksvika í Mosfellsbæ.  Ýmsar uppákomur hafa verið í tengslum við vikuna. Markmið vikunnar er að hver einasti bæjarbúi finni fyrir kærleik í sinn garð og gefi af sér kærleik. Þetta gæti falist í hrósi, faðmi, brosi, fallegum skilaboðum eða einhverju öðru uppbyggilegu og skemmtilegu.
 

Foreldrafundur í FMOS fimmtudaginn 11. febrúar kl. 18

Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 18 verður haldinn foreldrafundur fyrir foreldra allra nemenda í FMOS. Gestafyrirlesari á fundinum er Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við Kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík og mun hann ræða um forvarnir.  Álfgeir er mjög fær fyrirlesari og verður án efa mjög áhugavert að heyra hvað hann hefur að segja um þetta mikilvæga málefni sem forvarnir eru. Annað aðalefni fundarins er stofnun foreldraráðs FMOS. Við hvetjum alla foreldra til að mæta og taka þátt í uppbyggingu skólans.

 

Setning vorannar

Skólahald vorannar hefst á skólasetningu á sal skólans miðvikudaginn 6. janúar kl. 8.30.  Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu að henni lokinni.   Nýnemar eru svo boðaðir á kynningarfund í salnum kl. 9.40 sama dag.

 

Skrifstofa skólans lokuð 22. til 24. desember

Skrifstofa skólans verður lokuð 22.-24. desember.  Hún verður opnuð aftur 28. desember og verður opin milli jóla á nýjárs.

 

FMOS auglýsir eftir enskukennara í eina önn

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir enskukennara í 75-100% stöðu í afleysingu í eina önn.

Lesa meira
 

Vetrarfrí í FMOS

Föstudaginn 30. október og mánudaginn 2. nóvember er vetrarfrí í FMOS og verður því skólinn lokaður þessa daga.  Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. nóvember.
 

Viðbragðsáætlun

Viðbragðsáætlun skólans vegna heimsfaraldurs inflúensu (H1N1) er að finna hér.

 

Foreldrafundur 17. september kl. 17:30

Boðað er til fundar í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ með foreldrum/forráðamönnum nemenda skólans fimmtudaginn 17. september 2009 kl. 17:30.

Lesa meira
 

Tilkynning frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild RLS vegna heimsfaraldurs inflúensu A (H1N1)

Heimsfaraldur inflúensu A (H1N1) sem ríður yfir um þessar mundir er tiltölulega vægur og mun ekki hafa áhrif á skólahald.

Lesa meira
 

Bókalisti haustannar 2009

Bókalisti fyrir haustönn 2009 er tilbúinn. Hann má nálgast hér.
 

Spennandi dreifnám með nýju sniði í FMOS

Á haustönn 2009 verður boðið upp á dreifnám í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Dreifnámið verður með nýstárlegu sniði þar sem nemendur stunda námið í gegnum kennslukerfi skólans og býðst einnig að koma í skólann í kennslustundir eða verkefnatíma. Dreifnámið er því í raun blanda af fjarnámi og dagskólanámi þar sem hver nemandi skipuleggur nám sitt í samráði við kennara.

Lesa meira
 

Til nemenda Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

Búið er að senda öllum umsækjendum bréf sem ætti að berast þeim á næstu dögum.   Mikilvægt er að þeir sem hafa fengið skólavist, standi skil á greiðslu skólagjalda með því að greiða greiðsluseðilinn sem fylgdi bréfinu eigi síðar en á eindaga, 27. júlí.

 

Nemendur mæta miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9.00 á sérstakan kynningardag þar sem þeir hitta stjórnendur og kennara skólans, fá afhentar stundatöflur og upplýsingar um helstu þætti skólastarfsins.  Formleg skólasetning verður fimmtudaginn 20. ágúst með þátttöku nemenda, starfsmanna og boðsgesta.  Föstudaginn 21. ágúst er fyrsti kennsludagurinn og mæta þá nemendur samkvæmt stundatöflu.

 

Auglýsing: FMOS auglýsir eftir húsverði/umsjónarmanni fasteignar

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir húsverði/umsjónarmanni fasteignar.

Lesa meira
 

Nýr framhaldskóli í hjarta Mosfellsbæjar

Opinn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 5. maí kl. 20 í Listasal Mosfellsbæjar.454_003_Augl_FMOS_3dl_x_25cm

 

Sjá nánar á meðfylgjandi auglýsingu. Smellið á hana til að stækka.

 

FMOS byrjar í haust: Metnaður og sveigjanleiki

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er nýr framhaldsskóli sem hefur starfsemi haustið 2009. Skólinn verður starfræktur í Brúarlandi í Mosfellsbæ fyrstu tvö árin.


Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hefur verið valinn af menntamálaráðuneytinu til þess að vera einn af fyrstu framhaldsskólum landsins til þess að starfa eftir nýjum lögum um framhaldsskóla. Í lögunum er töluvert frelsi bæði fyrir skóla og nemendur til þess að setja saman nám, hvort sem það er til stúdentsprófs eða annarra lokaprófa. 

 

Skólinn leggur áherslu  á að bjóða nemendum metnaðarfullt nám við hæfi hvers og eins, á stúdentsbrautum, stuttum starfsnámsbrautum og almennum brautum.

Lesa meira
 

Fjölmenni í kynnisferð í Brúarlandi

Heimsókn 18. marsSíðasta miðvikudag, 18. mars, fór bæjarstjórn Mosfellsbæjar, ásamt fleiri starfsmönnum bæjarins í skoðunarferð í Brúarland til að skoða væntanlega aðstöðu framhaldsskólans. Sjá myndir úr heimsókninni hér. 

Lesa meira
 

Fimm námsbrautir í boði

Í skólanum verða fimm námsbrautir í boði.

Lesa meira
 

Fréttir af undirbúningi

Undirbúningi fyrir Framhaldsskólann í Mosfellsbæ miðar vel. Skólameistari hefur heimsótt nemendur í 10. bekk bæði í Lágafellsskóla, Varmárskóla og Klébergsskóla og upplýst þá um væntanlegan skóla. Nemendur voru mjög áhugasamir og forvitnir um skólann og spurðu margra góðra spurninga.

Lesa meira
 








Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica