Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Á döfinni

Dönskukennari

 Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir kennara í 50% stöðu í dönsku fyrir haustönn 2010.

 

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.  Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í dönsku og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

 

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2010.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið gudbjorg@fmos.is eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið gudrun@fmos.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Brúarlandi, 270 Mosfellsbær.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 27. júní 2010. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfanginu gudbjorg@fmos.is eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangið gudrun@fmos.is eða í síma 845-8829.

Skólameistari

Senda









Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica