Lán á fartölvum til nemenda
Þeir nemendur sem ekki eiga fartölvur til að nota í skólanum hafa möguleika á að fá lánaðar tölvur skólans. Skilyrði er að nemandi (og forráðamaður ef nemandi er yngri en 18 ára) skrifi undir samning um að fara í einu og öllu eftir reglum um lán á fartölvum skólans. Skólinn á þó mjög fáar tölvur og því eru nemendur hvattir til að koma sjálfir með fartölvur, þar sem kennslan í FMOS byggist töluvert mikið á tölvunotkun.
Samningur um lán á fartölvum.
Prentvæna útgáfu má nálgast hér.
Samningur þessi er um lán á fartölvum í eigu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ í kennslustundum í húsnæði skólans. Einungis er heimilt að lána þeim nemendum fartölvu sem hafa skrifað undir og skilað samningi þessum til skrifstofu.
Ef nemandi er undir 18 ára þarf foreldri/forráðamaður að undirrita samninginn ásamt nemanda.
_______________________________ kt. _________________ samþykkir að fara í einu og öllu eftir eftirfarandi reglum um fartölvur í eigu skólans:
- Fartölvur eru eign skólans og þær á aðeins að nota í viðfangsefni sem tengjast skólastarfinu.
- Fartölvur eru lánaðar í eina kennslustund í senn, samkvæmt ákvörðun kennara og ber því að skila þeim í lok hverrar kennslustundar. Eina undantekningin er ef nemandi ætlar að nýta fartölvuna í verkefnatíma.
- Fartölvur skólans eru ekki lánaðar í matarhléi.
- Nemandi skal skrá fartölvu á sitt nafn á þartilgerðum eyðublöðum um fartölvuútlán og skrá hana út þegar henni er skilað.
- Nemandi má undir engum kringumstæðum skilja fartölvu skólans eftirlitslausa og ber skilyrðislausa ábyrgð ef fartölva í hans umsjón er skemmd eða henni stolið. Ef nemandi fær að auki hleðslutæki lánað gilda sömu reglur um það.
- Nemanda er óheimilt að setja upp hugbúnað á tölvur skólans eða á einhvern hátt breyta uppsetningu tölvubúnaðar.
- Nemendum er bannað að senda óviðeigandi efni með tölvum skólans hvort heldur er í tölvupósti, á vefsíður eða með öðrum verkfærum. Hér er átt við fjölsendingar (keðjubréf, ruslpóst), ósiðlegt efni, og annað sem getur verið særandi eða meiðandi.
- Nemendum er óheimilt að fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða að afrita nokkur gögn sem eru á tölvuneti skólans nema eigin gögn.
- Óheimilt er að vera með matvæli í nálægð við tölvubúnað skólans.
Ef reglur þessar eru brotnar er skólanum heimilt að stöðva fartölvulán til viðkomandi um óákveðinn tíma.
Samningur þessi gildir fyrir skólaárið 2011-2012.
_______________________ __________________________________
Fyrir hönd FMOS Nemandi
_______________________________
Forráðamaður ef nemandi er yngri en 18 ára
