Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ - stofnaður árið 2009
Umhverfisstefna

Umhverfisstefna Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

Síðast breytt: 17. febrúar 2011

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við umhverfi og auðlindir. Leitast er við að starfsemi og rekstur skólans sé eins umhverfisvænn og kostur er. Í skólanum er lögð áhersla á að efla umhverfisvitund nemenda og auka ábyrgðartilfinningu þeirra fyrir bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfinu á hnattvísu.

Til að styðja við áherslur skólans í umhverfismálum gildir eftirfarandi:

  • Umhverfisnefnd starfar innan skólans. Nefndin er skipuð fulltrúum nemenda, kennara, skólastjórnenda og annarra starfsmanna skólans. Nefndin kemur með tillögur að úrbótum í umhverfismálum skólans.
  • Umhverfisfræði er skylduáfangi fyrir alla nemendur skólans. Í áfanganum kynnast nemendur umhverfismálum í víðu samhengi en fá jafnframt tækifæri til að kynna sér nánar málefni innan umhverfisfræðinnar sem þeir hafa mestan áhuga á.
  • Kennarar og aðrir starfsmenn fá stuðning til að sækja námskeið og ráðstefnur sem lúta að menntun til sjálfbærni, bæði til eflingar kennslu og í þágu umhverfisvænni starfshátta skólans.
  • Endurvinnslukassar fyrir pappír eru í öllum stofum og á skrifstofu. Endurvinnslukassar fyrir dósir og flöskur eru á hverri hæð skólans.
  • Sparperur eru notaðar í öllum ljósastæðum.
  • Matvæli eru keypt í stórum einingum þegar það er hægt til að minnka magn umbúða sem þarf að farga.
  • Verkefni og námsefni eru að mestu leyti á rafrænu formi. Starfsmenn eru meðvitaðir um að prenta út eins lítið og unnt er og prenta báðum megin á blöðin þegar það er hægt. 
  • Til að auðvelda starfsfólki og nemendum að nýta vistvæna ferðamáta til og frá skólanum hefur verið sett upp grind fyrir utan skólann til að læsa reiðhjólum við.

 Næstu skref í átt að menntun til sjálfbærni:

  • Að áherslur skólans á umhverfi og auðlindir endurspeglist í öllum námsgreinum. Fyrsta skref í þessa átt er að stofna þverfaglegan starfshóp til vinna að því að svo verði.
  • Að nemendum verði gefinn kostur á að taka virkan þátt í að móta og framkvæma stefnu skólans í umhverfismálum. Þetta verður m.a. gert með því að bjóða nemendum að vinna að þessum málaflokki innan umhverfisfræðiáfangans sem allir nemendur taka.
  • Stefnt er að því að nemendum bjóðist valáfangar í umhverfisfræði auk áfangans sem allir nemendur taka.
  • Stefnt er að því að flokka allt sorp. Nú þegar eru kassar fyrir pappír til endurvinnslu í öllum skólastofum og á skrifstofu en markmiðið er að mun fjölbreyttari úrgangur verði flokkaður. Athugað verður hvort raunhæft sé að safna lífrænum úrgangi til moltugerðar.
  • Athugað verður hvort nota eigi umhverfisvænni efni við ræstingar í skólanum.
  • Farið verður yfir samgöngumál í tengslum við skólann.
  • Við innkaup verði tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða.

 

 

 

 

 

 

 




 

Senda


Útlit síðu:

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica