Jafnréttisáætlun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Síðast breytt: 30. mars 2011
Markmiðið með jafnréttisáætlun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ er að tryggja að gætt verði fyllsta jafnréttis á öllum sviðum þar með talið lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Að sjá til þess að bæði starfsmenn og nemendur verði metnir á eigin forsendum og allir fái notið hæfileika sinna án tillits til kynferðis, kynhneigðar, litarháttar, trúarskoðana, fötlunar, þjóðernis og uppruna eða stéttar. Þannig vill skólinn leitast við að hafa ávallt hæft starfsfólk í öllum stöðum og að mannauður nýtist sem best. Gefa skal starfsfólki og nemendum greiðan aðgang að aðila sem getur komið málum þeirra í farveg og skal sú persóna vera augljós.
Áherslur í framkvæmd jafnréttisáætlunar skólans:
Starfsmenn
Launajafnrétti: greiða skal laun samkvæmt lögum og kjarasamningum.
Ráðningar og stöðuveitingar: starfsmenn eigi jafnan rétt á þátttöku í stjórnunarstörfum og við úthlutun verkefna innan skólans.
Starfsandi: allir starfsmenn eiga rétt á að komið sé fram við þá af virðingu og hvers kyns áreitni er ekki liðin.
Samræming vinnu og fjölskyldulífs: reynt er að taka tillit til óska starfsmanna varðandi hlutastörf og sveigjanlegan vinnutíma til að auðvelda starfsmönnum að samræma starf og fjölskyldulíf.
Jafn aðgangur að endurmenntun: starfsmönnum öllum verða tryggðir sömu möguleikar til endurmenntunar.
Nemendur
Starfsandi: allir nemendur eiga rétt á að komið sé fram við þá af virðingu. Hvers kyns áreitni er ekki liðin. Skólinn skal leitast við að byggja upp sjálfstæði og sjálfsvirðingu nemenda með því markmiði að þeir læri að standa með sjálfum sér.
Jafnrétti: gengið er út frá því að allir séu jafnir og eigi jafnan rétt á tilveru sinni. Leitast skal við í kennslu að hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi í víðum skilningi. Jafnframt að vinna gegn hvers kyns fordómum.
Jafnrétti til náms: Stefna skólans er að miða kennslu út frá ólíkum þörfum nemenda og virða rétt nemenda til að hafa ólíkar skoðanir.
Félagslíf: allir nemendur eiga jafnan rétt á þátttöku í félagslífi á vegum skólans og skal skólinn leitast við að hvetja þá til þátttöku og koma til móts við þarfir þeirra.
Framkvæmd: Jafnréttisfulltrúi er starfandi við skólann og sér um framkvæmd jafnréttisáætlunar.
